Iðunn - 01.02.1885, Blaðsíða 20
82 Hagnýting náttúrukraí'tanna.
jafnaði engu ódýrara enn gufuaflið, og svo muni vera
háttað í Sviss, enn þar er fjöldi af ám um alt land-
ið. f sumum verksmiðjum, er knúðar eru fram
með vatnsafli, eru notaðar gufuvélar þegar vatnið
er of lítið. Vér ætlum eigi að síðr, að sigrast megi
á þessu torveldi, og að vatnsaflið sé ódýrara enn
gufuaflið, þótt vatnsvélunum só enn mikilla bóta
vant. Væri eigi svo, mundu Genfar-búar fyrir
löngu hafa af numið alkunna vatnsþrýstingarvél, er
þar er, og eigi hafa í hyggju, að fœra sér í nyt
vatnsafiið í Ehone með stórkostlegum vatnsvélum.
þ>á mundu heldr eigi Norðr-Ameríkumenn, er taldir
cru verkhygnir menu, hafa smíðað mikilfenglega
vatnsvél, er snýr kvörnunum í Minneapolis. þ>á
hefði og j>appírsgerðarmenn í Holyoke notað gufu-
afl til vélahreyfinga, enn eigi ið mikla vatnsafl,
er þar er neytt og talió er á við 17 000 hesta öfl.
þ>ótt vér því virðum mikils orð þeirra manna, er
ritað hafa um þetta efni, ætlum vér, að vatnsaflið
sé eigi dýrara enn gufuaflið, nema svo sé, að vél-
arnar sé eigi á þeim stöðum, sem vera ætti, eða
svo gerðar sem þær ætti að vera. í ritgerð þessari
ætlum vór heldr eigi að bora samau dýrleika vatns-
afls og gufuafls. Vér hugleiðum einungis, hvaða
náttúruöfl mönnunum verði auðið að nota, þeg-
ar gufuaflið er undir lok liðið eða kolanámurnar
þrotnar.
Aðrir meinlegri gallar eru á notkun vatnsaflsins.
Vér höfum áðr getið þess, að iðnaðrinn á Englandi
njóti mikilla hlunninda af því, að þar eru nœgar kola-
námur á hentugum stöðum,ogað aðrar þjóðir leggi ®
tolla fyrir þá sök, til að koma á jafnvægi í atvinnu-