Iðunn - 01.02.1885, Síða 16

Iðunn - 01.02.1885, Síða 16
78 Hagnýting náttúrukraftanna. uð hvarvetna, ör kol er eigi unt að fá, og fagnar því, að eugiuu skortr verði á kolsýru, þótt kolin þrjóti. Vindrinn cr éinn af þeim náttúruöflum, sem um langan aldr hafa unnið mannkyninu gagn. þó að gufuskip fjölgi svo á hverju ári, að ótrúlegt má þykja, sigla þrír fjórðu hlutar hafskipanna enn fyrir vindi um úthöfin. Vindarnir eru að vísu mjög ójafnir og mislyndir, nema á báðar hliðar við miðjarðarlínuna; enn sá kostr fylgir þeim, að eigi þarf að kaupa þá, þó að oft þurfi að bíða byrjar ; fyrir þá sök munu þau skip, er hafa mikinn farm og ódýran, lengi sæta þéssum byr. Seglskipin hafa á síðustu árum verið bœtt á ýms- an hátt, að líkíndum til að keppa við gufuskipin; hefir einkum verið bœttr seglbúnaðr skipanna og lögun þeirra. Svo eru nú og rannsökuð nákvæm- lega lögmál hafstraumanna og loftstraumanna, og komr sú þekking í góðar þarfir hafsiglingamönnum. Vindmylnur hafa verið notaðar í langan aldr, og hafa litlar bœtr verið gerðar á þeim. þó vantar eigi, að hugvitsménn hafi fengizt við að endrbœta þær, enn það eru smálegar umbœtr. Að vísu eru til vindmylnur, sem aka seglum éftir vindi, sem hlaða seglunum þegar hvéssir og lengja vængina þegar lygnir. Amerikskar vindmylnur hafa láflata vængi, og eru þær einkum hafðar til að reka áfram dæluvélar, er hafðar eru til vatnsveitinga. Enn all- ar þessar umbœtr eru heldr óhentugar. Erægasta vindmylna í heimi, vindmylnan við Vanangr (Sans- souei), hofir enn forna vængi, þótt jpýzkalands keis- ari hafi látið reisa hana upp af nýju. Aðalgallinn á vindmylnunum er sá, að þær vinna

x

Iðunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.