Iðunn - 01.02.1885, Síða 18

Iðunn - 01.02.1885, Síða 18
80 Hagnýting náttúrukraftanna. spegill, er snýst um öxul, enn sigrverk knýr fram öxulinn. Yeit spegillinn jafnan mót sólu og dregr að sjer sólargeislana. Spegillinn slær sólargeislun- um á ketil, og sýðr vatn í honum; verðr af því gufa, er hafa má til að hreyfa vélar. þossi vél er því raunar gufuvól, sem umsvifalaust fær hitann frá sólunni, svo að eigi þarí að neyta til þess kola- brenslu. I inum kaldari löndum, þar sem iðnaðr- inn er mestr, eru þó líkir gallar á þessari vól sem á vindmylnunum, eða enn meiri; því að logndagar koma þar sjaldan, enn sólskin er vart þriðja hvern dag, og hitamegin sólarinnar er mjög lítið á vetr- um. Yél þessi verðr því einungis notuð í heitu löndunum ; þar getr hún komið að góðu haldi, eink- um til að hreyfa vatnsveitingavélar, kvarnir eða sykurmylnur. Nú höfum vér drepið á, hversu nota megi sjálfa sólargeislana, enn áðr höfum vér skýrt frá því, að steinkolin, er höfð eru til að hreyfa gufuvólarnar, eru ávöxtr þessara hitageisla, er geymzt hefir í jörð- unni irm ómælilegar aldir. Vér skulum nú víkja máli voru að öðru afli, er einnig sprettr af hita sólarinnar og saman safnast nú á dögum. það er aíl strauinvatnanna, er þeh Sir William Thomson og Dr. William Siemens hyggja að verða muni að mikluin notum síðar. það hefir eigi verið reynt að roikna það, hvé mikið afl ár og fljót hafa í sór fólgið á allri lei^ þeirra frá upptökum til sjávar, enda mundi það verða óvinnanda verk. þess verðr að gæta, að aflið magnast sífelt og er óþrotlegt að kalla. Sú á, selO hreyfir vél með 1000 hesta afli, er jafn öflug eftá'

x

Iðunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.