Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Page 26

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Page 26
það hverjum manni frjálst að nafninu til án nokkurs ieyf- is að leita að olíu og vinna liana i landi sínu. Lögvernd þeirra landeigenda, sem ráðast kynnu í oliuleit í landi sínu, er harla litil, því að ríkið getur veitt öðrum aðilum rétt til olíuleitar og olíuvinnslu á hinum sömu stöðum. Landeigandinn á þá, að meginstefnu til, ekki skaðabóta- rétt fyrir annað en landspjöll og á ekki rétt að bótum fyrir þann kostnað, sem hann hefur lagt í við oliuleit eða oliu- nám, sbr. Pierre Sillard í L’Actualité Juridique 1955 nr. 6, bls. 53—57. Um sérleyfin, sem ýmist geta verið leitar- leyfi eða námaleyfi, eru ýtarleg fyrirmæli í lögunum og verða þau ákvæði ekki rakin hér. Virðist landeigandi sam- kvæmt þessu ekki eiga neinn rétt á bótum fyrir olíunám úr landi sinu. Eignarréttur landeiganda að því, sem er undir yfirborði lands hans, sætir því takmörkunum að þessu leyti. Stjórnarskrárákvæði um friðhelgi eignarrétt- ar hafa eigi verið talin standa því í vegi. Þýzkaland Samkvæmt þýzkum rétti tekur eignarréttur landeig- anda til jarðlaga undir jdirborði jarðar, en talið er, að landeigandi geti ekki lagt bann við mannvirkjum, sem eru svo djúpt í jörð, að liann getur enga hagsmuni haft af því að hindra þau, sbr. borgaralögbókina þýzku (B. G. B.) § 905. Samkvæmt námulögum eru þó margir málmar og jarðefni undanskilin eignarrétti landeiganda og ríkinu áskilinn réttur til vinnslu þeirra, sbr. 1. og 2. gr. námulaganna (Allgemeine Berggesetz fiir die Preus- zisehen Staaten) frá 24. júní 1865, ásamt síðari breyting- um á þeim (Gerhard Dapricli: Das Allgemeine Bergge- setz 1953). Ljóst er þvi, að svo er litið á, að setja megi eignarrétti landeiganda á efnum i jörð miklar takmark- anir og undanskilja þau einstaklings eignarrétti, án þess að til greina komi neinar bætur til landeiganda, að því er virðist. 152

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.