Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Qupperneq 53
Bókarfregn
J. B. Hjort: Prosedyreteknikk,
herunder Parts- og Vitneavhöring.
Útgefandi: Den Norske Sakförer-
forening. Oslo, 1956. 8° 280 bls.
Á árinu 1955 ákvað stjórn Lögmannafélags Noregs að
efna til verðlauna um beztu ritgerðina um efnið: „Málflutn-
ingstækni, ’— aðiljayfirheyrslur og vitnaleiðslur". Dóm-
nefnd var skipuð þrem hæstaréttarlögmönnum, þeim Finn
Arnesen, Sven Arntzen og Eilif Holmesland. Var nefndin
sammála um að veita verðlaunin J. B. Hjort, hæstaréttar-
lögmanni fyrir ritgerð, er barst frá honum um þetta efni.
Nú hefur Norska lögmannafélagið gefið rit þetta út í bókar-
formi.
Efni bókar þessarar er að því leyti sérstætt um bækur
lögfræðilegs efnis, að bókin fjallar ekki beinlínis um lög-
fræðina sjálfa, heldur er hér fyrst og fremst um kennslu-
bók í málflutningi að ræða. Mjög fáar bækur hafa verið
ritaðar um þetta efni á norðurlandamálunum og ekki er
mér heldur kunnugt um að málflutningur sé kenndur sér-
staklega í neinum háskólum Norðurlanda. Eins og nú er
ástatt verða því þeir lögfræðingar, er málflutning vilja
stunda, sjálfir að læra af reynslunni einni saman og þá oft
á tíðum á kostnað umbjóðenda sinna, a. m. k. fyrst í stað.
Höfundurinn bendir á, að ef hægt væri að kalla lögfræð-
ina vísindi, þá megi telja málflutning fyrir dómi til lista.
Enginn verði fullnuma í listum, án mikillar æfingar eða
án þess að tileinka sér þá tækni, sem listinni er nauðsyn.
Bók þessi er að sjálfsögðu rituð með hliðsjón af norsk-
um réttarfarsreglum og eftir lýsingum höfundar kemur
fram, að málflutningur í Noregi fer ekki að öllu leyti fram
179