Tímarit lögfræðinga - 01.07.1956, Qupperneq 56
miðuð við danskar aðstæður, en margt er þar, sem hér
á landi má að haldi koma.
Sami höfundur hefur og látið frá sér fara bók, er hann
nefnir „Lieitation“. Sú samningsaðferð að útboð sé gert,
er, eins kunnugt er, bæði hér á landi og annars staðar,
mjög notuð þegar samið er um húsbyggingar og mann-
virkjagerð.
„Forfaldsklausuler i Pantebreve“ er verðlaunaritgerð
H. Lund Christiansen, ritara í dómsmálaráðuneytinu. Það
var kaupmannahafnarháskóli sem, árið 1953, hét verð-
launum fyrir ritgerð, þar sem gagnrýnd væri og metin
hin venjulegu eindögunarákvæði í veðbréfum. Miða skyldi
við venjulegar reglur um samninga og dómsvenjur.
„Misligholdelse af ejendomsköb“ eftir Anders Vinding
Kruse prófessor í Árósum. Bókin er ítarleg á sínu sviði.
I lok hennar er rætt um ábyrgð og skyldur lögmanna,
fasteignasala og annarra þeirra, sem hlut eiga að sölu
fasteigna.
Að því er vátryggingarréttinn snertir má geta þess, að
þeir A. Drachmann Bentson og Knud Christensen hafa lok-
ið 2. útg. af: „Lov om forsikringsaftaler med bemærkn-
inger og sagregister“. Bók þessi hefur fengið hina beztu
dóma og má heita nauðsynleg hverjum þeim, sem við
vátryggingarmálefni fæst, enda eru lög okkar nr. 20, 8/3
1954 um vátryggingarsamninga mjög lik — og reyndar
nær eins og hin dönsku svo sem kunnugt er.
„Betsforholdet mellem andelsforeninger og deres med-
lemmer“ eftir Ernst Dyrbye kom út 1955 og 2. útgáfa af
„Hándbog i dansk aktieret“ eftir H. B. Krencliel hefur
Estrid Jakobsen séð um 1954. Báðar þessar bækur fjalla
182