Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Qupperneq 71
er beint á móti niðurganginum í miðstöðina og ef eldur
verður laus, er sá maður, er kynni að vera þar inni, í
beinni lífshættu."
2". Árnessýsla
Þar er annað aðalfangelsi ríkisins, vinnuhælið á Litla-
Hrauni við Eyrarbakka. Húsið var, upp úr 1920, byggt
sem sjúkrahús, en var 1929 gert að vinnuhæli fyrir saka-
menn. Hefir svo verið síðan. Þykir rétt til lýsingar á stofn-
uninni að taka hér upp kafla úr bréfi núverandi forstjóra
vinnuhælisins, dagsettu 3. júlí s.l., svohljóðandi:
„Árið 1920 var hafin bygging á spítala á Eyrarbakka,
sem árið 1929 var breytt í vinnuhæli fyrir afbrotamenn.
Á húsinu, sem er tvær hæðir, kjallari og ris, 'hafa orðið
ýmsar breytingar á þessu tímabili, en í dag er húsið þann-
ig: 29 eins manns klefar; á efri hæð hússins eru 15 klefar.
á neðri hæð 11 klefar og í kjallara 3 klefar. Stærð klef-
anna er mjög misjöfn. Minnstu klefarnir eru 150x210 cm.
Algengasta stærð klefanna er í kringum 150x310 cm og
stærstu klefarnir eru upp í 215x325 cm.
Á neðri hæðinni eru 6 klefar með steyptum rúmum, í
þeim klefum eru svampdýnur í rúmum. 1 öðrum klefum
eru járnrúm eða beddar með venjulegum vattdýnum. Ann-
ar rúmfatnaður er: Vattsæng ásamt veri, koddi, lak og
ullarteppi. Húsbúnaður í klefum að öðru leyti er: Servant-
ur, stóll (kollur), lítið borð er í flestum klefunum, fata-
hengi eða snagar fyrir fatnað. Sem hreinlætistæki í hverj-
um klefa er 1 emeleruð fata. Á báðum hæðum hússins eru
salerni, handlaugar og sturtubað. Innrétting hælisbygg-
ingarinnar er að öðruleyti þessi: I rishæð er þvottahús,
herbergi til að ganga frá þvotti, þurrkloft og geymsluher-
bergi. Á efri hæð eru eingöngu fangaklefar og snyrtiher-
bergi. Á neðri hæðinni er, auk fangaklefanna, setustofa
fyrir fanga, stærð 320x350 cm, einnig varðstofa hælisins
og lítið herbergi til geymslu á ýmsum nauðsynjum, s. s.
vörum til fanga o. fl., þar er líka eins og áður er sagt,
Tímarit lögfrceöinga
69