Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1965, Page 28

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1965, Page 28
telja til löggæzlustarfa. Sum þeirra starfa, sem getið var i I., má einnig telja til löggæzlustarfa, svo sem lvsing af- brotamanna, samkv. Jb. I.,5, i. f., sbr. 6. tölulið C i I. hér að framan. Sama gildir um aðvörun þá, sem sýslumenn áttu að gefa á leiðarþingum, um landshornamenn, samkv. Jb. I.,7, sbr. áður sagt í 7. tölulið C I. 1 sumum skipunarbréfum sýslúmanna á 16. öld, segir m. a. svo um störf þeirra: „— Að hann (þ. e. sýslumaður) tali lög og rétt til hvers manns, þó með vægð og miskunn þar sem þess þarf með (eða þar til heyrir), en þrjózkum og þrályndum sé hann réttur dómari og refsingarsam- ur —x) 1 Lönguréttarbót 1450, er hirðstjórum, lögmönnum og sýslumönnum skipað að gera rétt lög og réttindi hverjum manni. 1 2) 1 réttarbót frá 1305 segir, að sýslumenn skuli gera mönnurn konungs rétt, sem til Islands sigla, ef þeir verða brotlegir, eða ef misgert var við þá. 3) Af Jb. IV.s virðist mega ráða, að sýslumenn skyldu hafa forgöngu um handtöku ræningja og oíbeldismanna. 1 réttarbót 1303 var sýslumönnum boðið að handtaka þá menn til geymslu, sem viðhaft höfðu heitingar eða hótanir.4) I réttarbótinni frá 1305 segir, að handtaka skuli vonda menn (afbrota- menn) og færa þá sýslumanni i varðveizlu og frekari fyr- irgreiðslu. Samkvæmt dómi frá 1472 hafa sýslumenn varðveitt fanga,5 6) Samkv. Jb. IV.s, voru allir þeir, sem sýslumaður kveður þar til, skyldir eftir þeim að fara, sem rændu menn eða herjuðu. Með dómi 1616 eru allir, sem sýslumenn til kveðja skvldir eftir þeim að fara, sem ræna eða herja að viðlagðri sekt. °) Samkv. Jb. III,c, varðaði það 1) í. F. VIII, 154, 274, 832, IX, 267. 2) í. F. V, 64. 3) í. F. II, 343—345. 4) í. F. II, 338. 5) í. F. V, 656. 6) A. í. IV, 312. 22 Timarit löcjfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.