Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Side 17

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Side 17
ur Ingvi Sigurðsson hæstaréttarlögmaður hefir tekið sæti Jónatans Þórmundssonar er óskaði lausnar frá nefndarstörfum. Endurskoðun alm. hgl. hefir verið hagað svo, að hegningarlaganefnd hefir tekið til meðferðar einstök ákvæði og kafla laganna. Að svo stöddu hefir ekki verið framkvæmd allsherjarendurskoðun, þótt vita- skuld hafi lögin í heild sinni ávallt verið höfð í sjónmáli í þessu starfi. Hegningarlaganefnd er fastanefnd, sem hefir það verkefni að fylgjast með reynslu hér innanlands í dómstörfum í opinberum málum og í rannsóknar- og ákærustarfi svo og með þróun í grannlöndum, og enn að hyggja að fræðiviðhorfum í refsirétti og meta þörf á breytingum á þeim heildargrundvelli. Formaður nefndarinnar hefir lengi verið full- trúi Islands í norrænu hegningarlaganefndinni, og fást með þeim hætti tengsl við hinar norrænu hegningarlaganefndirnar. Er það samstarf til mikilla nytja. m. YFIRLIT YFIR BREYTINGAR. Breytingar á alm. hgl. hér á landi og í grannlöndunum síðustu árin lúta að margvíslegum efnum. Þær varða m. a. (1.) afnám refsiákvæða (afkriminalisering) og (2).) upptöku nýrra refsiákvæða frá rótum (ny- kriminalisering). Þá fela þær í sér (3.) breytt viðurlög við brotum, bæði þannig að dregið er úr viðurlögunum (nedpenalisering) eða þau eru aukin og þyngd (oppenalisering). Eru ýmis tilbrigði hugsanleg í því efni. Einnig er til, að háttsemi, sem verið hefir ólögmæt, en ekki refsi- verð, sé lýst refsiverð, sbr. t. d. ef sú breyting yrði gerð á ákvæðum umferðarlaga, varðandi öryggisbelti í bílum, sbr. lög 55/1981, að lög- mælt yrði refsing við að vanrækja að spenna beltin, sbr. raunar þró- unina í Noregi. Andstæð þróun gæti einnig átt sér stað, þ. e. að hátt- semi verði lýst refsilaus, en væri ólögmæt allt að einu. III. 1. Ekki orkar tvímælis, að mikil refsibólga er í löggjöf. Oft er háttsemi m. a. lýst refsiverð án þess að málið hafi verið grandskoðað. „Lov over lov seg bygger“, eins og skáldið segir. Refsisprotinn er vissu- lega verkfæri, sem vandhaldið er á, og skyldi ekki beita að ófyrirsynju. I grannlöndunum hefir verið gert meir af því en hér á landi að afnema refsiákvæði eða draga úr þeim. Má t. d. minna á afnám refsinga við ölvun á almannafæri, þegar ekki er samfara broti röskun á öðrum hagsmunum en þeim, sem ákvæðið lýtur beinlínis að, sbr. og ákvæði um klám, ýmis skírlífisbrot, þ. á m. samfarir milli persóna af sama 135

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.