Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Blaðsíða 63
í öðrum kafla laganna er fjallað um efnahagslögsögu. I 3. gr. segir,
að efnahagslögsaga Islands sé það svæði utan landhelgi, sem afmarkist
af línu, sem alls staðar er 200 sjómílur frá grunnlínum landhelginnar,
þó með þeim breytingum sem leiða kunni af gildandi samningum við
önnur ríki og svokallaðri miðlínureglu milli landa, sem greind er í 7. gr.
Samkvæmt 4. gr. hefur Island innan efnahagslögsögunnar fullveldis-
rétt að því er varðar rannsóknir, hagnýtingu, verndun og stj órnun auð-
linda, bæði lífrænna og ólífrænna á hafsbotninum og í hafinu. Þá hef-
ur Island lögsögu að því er varðar byggingu mannvirkja þar og not
af þeim og vísindalegar rannsóknir. Enn segir í grein þessari, að fram-
kvæmd réttinda og skyldna innan efnahagslögsögunnar skuli vera sam-
kvæmt sérstökum lögum og í samræmi við milliríkjasamninga, sem ís-
land er aðili að.
Landgrunn Islands er skilgreint í III. kafla laganna. Þar segir að
landgrunn Islands nái til hafsbotnsins og neðansjávarsvæða utan land-
helgi, sem eru framlenging landsvæðisins allt að ytri mörkum land-
grunnsins, þó að 200 sjómílna fjarlægð frá grunnlínu landhelginnar,
þar sem ytri mörk landgrunnssvæðisins ná ekki þeirri fjarlægð. Allt
er þetta þó með fyrirvara um samninga við önnur ríki, svo og mið-
línuregluna, sem áður er nefnd.
Samkvæmt 6. gr. nær fullveldisréttur Islands yfir landgrunninu til
rannsókna og hagnýtingar á ólífrænum auðlindum sem þar eru svo og
lífverum sem á nýtingarstigi eru annað hvort hreyfingarlausar á hafs-
botni eða í honum eða geta ekki hreyft sig án snertingar við hafs-
botninn. Þá segir, að stjórnvöld setji reglur um rannsóknir og hagnýt-
ingu auðlinda landgrunnsins.
2. Á árunum 1978 til 1980 urðu all miklar umræður milli Islands og
Noregs um landgrunnið á svæðinu milli Islands og Jan Mayen og nýt-
ingu þess. Samkomulag náðist um að leggja málið fyrir sérstaka sátta-
nefnd. Sáttanefndin skilaði skýrslu sinni í maí 1981. Á grundvelli henn-
ar var gert samkomulag um deilumál þessi hinn 22. október 1981. Gekk
samkomulagið í gildi hinn 2. júní 1982 og hefur verið birt sem nr. 3/
1982 í C-deild Stjórnartíðinda.
í fyrstu grein samkomulags þessa er tekið fram, að mörk land-
grunns landanna skuli vera sömu og mörk efnahagslögsögu þeirra, þ.
e. a. s. miðuð við 200 sjómílur frá grunnlínum landhelginnar.
Þá er í 2. gr. ákveðið svæði skilgreint, þar sem sameiginleg rann-
sókn og nýting fari fram. Svæði þetta er um það bil 45.470 km2 að
flatarmáli og skiptir 200 mílna línan því þannig, að um 12.720 km2 eru
181