Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Síða 64
innan íslenskrar lögsögu og 32.750 km2 innan norskrar lögsögu.
I samkomulaginu er að finna ítarlegar reglur um hina sameiginlegu
nýtingu svæðis þessa.
1 3. gr. segir, að á fyrsta stigi rannsókna, sem ætlaðar eru til kerfis-
bundinna jarðfræðikannana á svæði þessu, skuli aðilar annast sam-
eiginlega jarðsveiflumælingar og segulrannsóknir. Norska olíustofn-
unin muni sjá um framkvæmd þessara rannsókna á grundvelli áætlana,
sem samdar verði sameiginléga af sérfræðingum beggja aðila. Allur
kostnaður af þessum rannsóknum verði greiddur af norsku olíustofn-
uninni eða norska ríkinu, nema um annað verði sérstaklega samið.
Norskir og íslenskir sérfræðingar hafi jafna möguleika á þátttöku í
rannsóknum og í mati á upplýsingum þeim, sem fram koma. Upplýs-
ingar allar skal leggja fyrir stjórnvöld landanna og með þær farið
sem trúnaðarmál. Verði af sölu jarðsveiflu- eða segulupplýsinga til
einkafyrirtækja, skal skipta hreinum hágnaði af því milli aðila sam-
kvæmt sérstökum samningi. Þá segir í 4. gr., að sýni jarðsveiflumæl-
ingar og segulrannsóknir að æskilegt sé að framkvæma nákvæmar at-
huganir á ákveðnum hlutum svæðisins þ. á m. hefja tilraunaboranir,
skuli hugsanleg einkaleyfi til rannsókna og vinnslu á slíkum sérsvæð-
um veitt á grundvelli samnings um sameiginlegt verkefni nema aðilar
komi sér saman um annað, og semja megi um, að olíufélög ríkisrekin
eða ekki, eigi aðild að slíkum samningum.
Samkv. 5. gr. skal ísland eiga rétt til 25% þátttöku í olíustarfsemi í
tilraunaskyni á því svæði, sem liggur norðan markalínu efnahagslögsögu
landanna, þ. e. í norskri efnahagslögsögu. 1 samningaumleitunum við
olíufélög muni Noregur reyna að fá því framgengt, að bæði íslenski og
norski hluti kostnaðar við slíka olíustarfsemi sé borinn uppi af hlutað-
eigandi félági allt fram að því að lýst hafi verið yfir að fundist hafi arð-
bær vinnslusvæði. Verði ekki unnt að fá því framgengt, að kostnaður
beggja aðila sé borinn uppi af hlutaðeigandi félagi, skal um það samið
hvernig með skuli fara. Óski Island ekki þátttöku á þessum grundvelli,
er Noregi heimilt að halda áfram á eigin áhættu. Finnist arðbær vinnslu-
svæði, hefur Island á því stigi kost á að ganga inn í starfsemina með sinn
hluta gegn því að greiða Noregi þann hluta útlagðs kostnaðar fram að
þeim tíma, sem hefði svarað hlut Islands, ef það hefði verið þátttak-
andi frá upphafi. Þá segir, að norsk löggjöf og norsk stefna í olíu-
málum og norsk ákvæði um eftirlit með starfseminni, öryggisráðstaf-
anir og umhverfisvernd skuli gilda um starfsemi á svæði því, sem
hér er um fjallað, og norsk stjórnvöld skuli einnig fara með fram-
kvæmdavald og stjórnun á þessu svæði.
182