Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Side 68
um kannanir á setlögum innan íslensks yfirráðasvæðis, sem kynni að
innihalda kolvetni, olíu eða gas, að annast samningaviðræður f. h. ráðu-
neytisins við þá aðila, sem rétt væri að tækju þátt í könnun varðandi
olíuleit, að semja drög að reglum um hagnýtar rannsóknir á auðlind-
um landgrunnsins og láta fara fram könnun á hugsanlegum umhverfis-
áhrifum olíuvinnslu, ef til kæmi hér við land. Nefnd þessi er í daglegu
tali kölluð nefnd um hagnýtar hafsbotnsrannsóknir (NHH).
3. Hinn 17. ágúst 1978 veitti iðnaðarráðherra fyrirtækinu Western
Geophysical Co. of America leyfi til mælinga á setlögum norðan ís-
lands. Þar sem leyfi þetta er fyrsta sérleyfið, sem fyrirtæki er veitt
til slíkrar könnunar, er rétt að rekja nokkuð meginskilyrði þess, en
það er að verulegu leyti sniðið eftir norskum fyrirmyndum.
Leyfishafi skuldbindur sig til þess að vinna að könnuninni samkvæmt
leyfisbréfinu og í samræmi við gildandi íslensk lög og reglur. Könn-
unin tekur til fjögurra mælingalína samals um 1100 km lengd og eru
landfræðileg hnit upphafs- og endapunkta mælingalína ákveðin. Leyf-
ið heimilar leyfishafa að gera bergmáls- segul- og þyngdarmælingar, en
borun er óheimil. Mælingar skulu gerðar á því rannsóknarskipi, sem
leyfishafi hafði sótt um leyfi fyrir og skyldi notað við rannsóknirnar.
Skipshafnarskrá og skrá um sérfræðinga um borð í skipinu skyldi
kynnt og allar breytingar tilkynntar iðnaðarráðuneytinu. Meðan á mæl-
irigum stæði skyldi rannsóknarskipið tilkynna Landlielgisgæslunni um
næstu strandstöð, daglega staðsetningu skipsins kl. 10.00 að íslensk-
um tíma. Komi skipið í íslenska höfn skuli það hlýta íslenskum regl-
um og greiða þau gjöld sem venja sé um slík skip. Ráðuneytið áskildi
sér rétt til að hafa trúnaðarmann um borð meðan skipið væri að mæl-
ingum. Þá skyldi trúnaðarmaður ráðuneytisins taka þátt í úrvinnslu
gagna.
Leyfishafi skyldi láta ráðuneytinu í té ítarlega skýrslu um fram-
kvæmd og niðurstöðu könnunarinnar í síðasta lagi innan 6 mánaða eft-
ir lok mælinga. Skyldi leyfishafi þá afhenda ráðuneytinu að kostnaðar-
lausu afrit af öllum þeim gögnum og aðstoða ráðuneytið við túlkun
þeirra. Gert var ráð fyrir að gögnin yrðu meðhöndluð um nokkurt
skeið sem trúnaðarmál með samþykki ráðuneytisins, en að þeim tíma
liðnum skyldi leyfishafi afhenda ráðuneytinu frumeintök áðurgreindra
gagna, sem yrðu þá eign þess. Leyfishafinn skyldi tilkynna ráðuneyt-
inu hverju sinni, þegar hann léti öðrum aðilum í té upplýsingar um
niðurstöður könnunarinnar og afhenda ráðuneytinu afrit af samning-
um og aðrar slíkar upplýsingar. Leyfishafinn skuldbatt sig til að sjá
186