Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Síða 10

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Síða 10
við farsamning), telst samkvæmt framangreindu til farangurs. Vöru- bifreiðir og önnur ökutæki, sem aðallega er ætlað að flytja vörur, teljast hins vegar ekki farangur.8 Sama gildir, þegar vöru- eða fólks- bifreið er flutt skv. skriflegum farmsamningi, farmskírteini eða öðru vöruflutningsskjali, og fer þá um flutninginn eftir ákvæðum 4. kafla sigll. ökumaður bifreiðar, sem flutt er sem farmur, telst þó farþegi eftir berum orðum 2. mgr. 120. gr. Gilda ákvæði 5. kafla um hann. Ofangreind hugtök eru skilgreind í 120. gr. sigll. Ástæða er til að vekja athygli á orðunum „tap“ og „tjón“ í ákvæðum þeim, sem fjalla um grundvöll og takmörkun bótaábyrgðar og lýst er í næstu köflum hér á eftir. Þessi orð eru ekki skýrð sérstaklega í lögunum, frekar en í norrænum fyrirmyndum þeirra. Orðið „tjón“ er í ákvæðum þessum ýmist notað í merkingunni „virt tjón“, (þ.e. sú peningaupphæð, sem fjártjón tjónþola er virt til) eða merkingunni „rauntjón" (þ.e. þau spjöll, sem orðið hafa). Til dæmis má nefna 138. gr. sigll., en þar segir að farsala sé skylt að bæta „tjón“ (fyrrnefnda merkingin), er hlýst af því að farangur týnist eða skemmist, ef tapið eða „tjónið“ (seinni merkingin) hlýst af yfirsjón eða vanrækslu. Síðar í sömu grein er talað um „tjón“ af seinkun og merkir orðið þar „virt tjón“. 1 2. mgr. sömu greinar er tjón svo notað í merkingunni „rauntjón“, þeg- ar fjallað er um ábyrgð á „tapi eða tjóni á peningum, verðbréfum eða öðrum verðmætum.“ Orðið „tap“ í 138.—142. gr. sigll. á við það, að hlutur tapast, þ.e. týnist eða glatast í flutningi.9 1 sömu greinum er ýmist talað um, að farangur „týnist eða skemmist“, „glatist eða skaddist" eða „tapist eða skemmist“. Það er síður en svo einsdæmi hér á landi, að orðið tjón sé ekki í sömu lögum alltaf notað í sömu merkingunni, sjá t.d. 88. gr. um- ferðarlaga nr. 50/1987. 3. BÓTAGRUNDVÖLLUR 3.1 Ábyrgð á sakargrundvelli. Tjónþoli ber sönnunarbyrði Aðalreglan um bótaábyrgð farsala á tjóni vegna líkamsmeiðsla (þ. ám. dauða) er í 137. gr. Segir þar, að farsala sé skylt að bæta tjón, 8 Grönfors (1982), bls. 17 og Innstilling IX, bls. 11. 9 Orðaval í þeim ákvæðum sigll., sem hér um ræðir, er að sumu leyti í samræmi við dönsku siglingalögin. I dönsku lögunum eru orðin „tab eller skade" nokkrum sinnum notuð í merkingunni „tap (glötun) eða skemmdir“ á munum. Gætir þar áhrifa enska texta Aþenusamningsins frá 1974, en þar eru höfð orðin „loss of or damage to“ um tap eða skcmmdir á hlutum. 232

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.