Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Blaðsíða 8

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Blaðsíða 8
annars staðar á Norðurlöndum með lag'abreytingum árið 1973 og 1975. Fyrirmynd 5. kafla sigll. 1985 eru ákvæði 6. kafla siglingalaga á Norð- urlöndum, eins og þau eru eftir breytingar, sem gerðar voru á árunum 1982 og 1983. Norrænu lagaákvæðin um farsamninga eru sniðin eftir alþjóðasamningi um flutning farþega og farangurs, sem gerður var í Aþenu 13. desember 1974, sbr. og samningsauka frá 19. nóvember 1976.1 Að einu leyti fylgja norrænu lögin þó ekki efnisreglum alþjóða- samningsins. Hámarksfjárhæðir, sem farsali getur takmarkað ábyrgð sína við, eru hærri í lögunum en samningnum. Reglur sigll. 1985 um farsamninga eru mun efnismeiri en eldri ákvæði, og í þeim eru ýmis nýmæli, einkum um skaðabótaábyrgð far- sala. Nýmælin styrkja mjög réttarstöðu farþega frá því, sem var eftir sigll. 1963. Sérstaklega má nefna, að réttur farsala til að semja sig undan bótaábyrgð er mun þrengri en áður og sönnunarbyrði um sök er nú felld á farsala í ýmsum tilvikum, þar sem áður giltu almennar reglur um sönnunarbyrði. Á hinn bóginn fela sigll. 1985 í sér reglur um takmarkaða ábyrgð, en eftir sigll. 1963 var ábyrgð farsala ekki takmörkuð við hámarksfjárhæðir. Hér á eftir verður lýst aðalatriðum reglna þeirra í 5. kafla sigll. 1985, sem lúta að bótaábyrgð farsala vegna tjóns, sem farþegi verður fyrir, þ.ám. farangurstjóns. Aðeins er um stutta kynningu að ræða, en ekki ítarlegar skýringar á reglunum. 2. HUGTÖK Helstu hugtök, sem hér skipta máli, eru skýrð í 120. gr. sigll. Sam- kvæmt 1. mgr. hennar er „farsali“ (da.: bortfragter) sá, sem „í at- vinnuskyni eða gegn þóknun í viðskiptaaugnamiði"2 tekur að sér með samningi að flytja farþega eða farþega og farangur með skipi. Venju- lega er farsali sjálfur útgerðarmaður, en ekki er það skilyrði. Farsali í merkingu lagaákvæðisins getur því verið aðili, sem hefur skip ann- are manns til ráðstöfunar með samningi og notar rétt sinn til þess að flytja farþega. Einnig tekur ákvæðið til ferðaskrifstofu, sem sjálf (þ.e. í eigin nafni) tekur að sér að flytja farþega með skipi. Hins veg- ar á ákvæðið ekki við það, er ferðaskrifstofa gerir samning við far- 1 Sjá Alþt. 1984 A, bls. 1034. 2 í frv. til sigll. stóð „í atvinnuskyni eða gegn þóknun". Orðunum „í viðskiptaaugna- miði“ var bætt við á Alþingi. Hugtakið farsali er þvf nokkru þrengra í ísl. sigll. en í siglingalögum annarra ríkja Norðurlanda. Sjá Innstilling IX, bls. 12. 230
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.