Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Blaðsíða 59
Frá
Dómarafélagí
íslands
AÐALFUNDUR DÓMARAFÉLAGS ÍSLANDS 1987
Dómarafélag íslands hélt aðalfund, dómaraþing, á Hótel Sögu dagana 12.
og 13. nóvember 1987. Hófst fundurinn með ávarpi formanns félagsins, Jóns
Skaftasonar, yfirborgarfógeta, en síðan fluttu ávörp gestir fundarins, Björn
Friðfinnsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, en ráðherrann var í Finn-
landi, og Sveinn Snorrason, hæstaréttarlögmaður, formaður Lögmannafélags
íslands.
Aðalmál fyrri fundardags var aðskilnaður dómsvalds og framkvæmdavalds.
Framsögu um málið höfðu Björn Friðfinnsson, aðstoðarmaður dómsmálaráð-
herra, og Már Pétursson, sýslumaður og bæjarfógeti, en síðan fóru fram al-
mennar umræður. Margvísleg sjónarmið voru rædd og reifuð, og fóru skoð-
anir manna bæði saman og voru skiptar.
Að kvöldi fyrri fundardags snæddu fundarmenn og makar þeirra kvöld-
verð I boði dómsmálaráðherra.
Slðari fundardag fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf og fluttu þá formað-
ur og gjaldkeri félagsins skýrslur slnar. Urðu síðan almennar umræður um
þær og málefni félagsins. í fundarlok var eftirfarandi tillaga samþykkt sam-
hljóða:
„Aðalfundur Dómarafélags íslands haldinn 12. og 13. nóvember 1987 fagn-
ar því að dómsmálaráðherra hefur þegar skipað nefnd til þess að vinna að
tillögugerð um aðskilnað dóms- og stjórnsýslustarfa hjá dómaraembættum
utan Reykjavíkur og um þær breytingar sem af þvl leiða.
Þótt málið sé brýnt, varar fundurinn eindregið við því, að gefnu tilefni,
að endurskoðuninni verði hraðað svo að ekki vinnist tími til að skoða ræki-
lega alla þætti málsins.“
Að loknum fundi þágu fundarmenn og makar þeirra slðdegisboð borgar-
stjórnar Reykjavíkur í Höfða, þar sem Páll Glslason, varaforseti borgar-
stjórnarinnar, tók á móti gestum.
í skýrslu Jóns Skaftasonar, fráfarandi formanns, kom fram, að félagar I
Dómarafélagi fslands eru 98 talsins. Á síðasta starfsári var haldinn sam-
eiginlegur kynningarfundur félagsins, Lögfræðingafélags Islands og Lög-
mannafélags íslands um tölvunotkun og upplýsingatækni í starfi lögfræðinga
og voru flutt 6 framsöguerindi. Einnig var undirbúið málþing í samvinnu við
Lögmannafélag íslands um gæsluvarðhald, en ekki varð af því sökum dræmr-
ar þátttöku.
281