Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Side 32

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Side 32
Dómsmálaráðherra var af þessu tilefni sérstaklega spurður að því hvort til þess væri ætlast að saksóknari héldi sama eftirlaunarétti og hæstaréttardómarar og svaraði þannig: „ ... ætlazt er til, að saksókn- ari hafi í öllu sömu launakjör og hæstaréttardómarar, að svo miklu leyti sem ekki verður talið, að hæstaréttardómurum séu fengin með sjálfri stjórnarskránni lögkjör á þann veg, að óheimilt sé að veita öðr- um embættismönnum þau nema með stjórnarskrárbreytingu. Þetta er sá almenni leiðarvísir, sem eftir ber að fara, og held ég, að við bætum okkur ekki á því að ræða það atriði ýtarlegar hér. En ég vil lýsa því sem almennri reglu, að ég tel eðlilegast, að í öllu því, sem talið verður heimilt innan ramma stjórnarskrárinnar, séu lögkjörin svipuð eða hin sömu hjá þessum embættismanni og hæstaréttardómui'unum. Það er minn skilningur á þessu ákvæði“ (AT 1960 B: 1039). Þá skal þess getið að í 2. gr. frumvarpsins 1973 var sagt að umboðsmaður skyldi njóta sömu launakjara og hæstaréttardómarar og „að auki má veita honum viðbótargreiðslur, dagpeninga o.s.frv. eftir því sem þurfa þykir.“ Því eru svo mörg orð höfð um þetta ákvæði að undir hugtakið lög- kjör geta almennt ekki einungis fallið hvers konar launakjör og líf- eyrisréttindi heldur og ýmis önnur starfskjör eins og t.d. öryggi í starfi, en að því leyti er réttarstaða umboðsmanns einmitt lakari en ríkissaksóknara, sbr. 2. mgr. 1. gr. laganna. Ekki verður bætt úr vafa í þessu efni með reglugerð skv. 15. gr. laganna, en þá er á það að líta að skv. 2. gr. 1. 92/1986 um Kjaradóm ákveður dómurinn launakjör ríkissaksóknara og svo verður líklega einnig um umboðsmann. 4. Sjálfstæði (4. gr., 14. gr. og 2. mgr. 13. gr.) „Umboðsmaður er í störfum sínum óháður fyrirmatlum frá öðrum, þar með töldu Al- þingi." (4. gr.). „Umboðsmaður ræður sjálfur starfsfólk síns embættis. Um fjölda þess og launakjör skal farið eftir reglum sem Alþingi setur skv. 15. gr.“ (14. gr.). „Umboðsmanni er óheimilt að hafa með höndum launuð störf í þágu opinberra stofn- ana eða einkafyrirtækja." (2. mgr. 13. gr.). Skv. þessu er í lögunum reynt að tryggja sjálfstæði umboðsmanns í störfum, einkum með þrennum hætti: 1. Hann er óháður fyrirmælum frá öðrum. 2. Hann ræður sjálfur starfsfólk sitt. 3. Hann má ekki hafa með höndum launuð störf í annarra þágu. Um 1. Þótt umboðsmaður sé kosinn af Alþingi og eigi að gefa því skýrslu um störf sín skv. 12. gr. laganna getur Alþingi ekki gefið hon- um bein fyrirmæli í starfi, ekki heldur í skjóli 15. gr. laganna. Eru öll tvímæli tekin af í þessu efni í 4. gr. laganna sem felur í sér frávik 254

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.