Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Síða 44

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Síða 44
um meðferð opinberra mála, eftir því sem við á. Heimilt er málsaðila að vera viðstadd- ur vitnalciðsluna. Honurn skal, ef þörf krefur, skipa réttargæslumann samkvæmt ákvæð- um 2. mgr. 80. gr. laga nr. 74/1974. Ákveða má að vitnaleiðslur þessar skuli fara fram fyrir luktum dyrum." (3. mgr. 7. gr.). Þetta ákvæði er í nánum tengslum við hinn almenna upplýsingarétt umboðsmanns sem áður var rætt um. Er ákvæðið samhljóða 3. mgr. 8. gr. í frumvarpinu 1973, eins og átt hefði að skýra það ákvæði þrátt fyrir það orðalag að umboðsmaður (sjálfur) gæti kvatt mann fyrir dóm. 1 athugasemdum við þá grein frumvarpsins sagði að víðtækar heimildir umboðsmanns til öflunar vitneskju varði ekki aðeins stjórn- valdshafa heldur geti hann og neytt þeirra ráða sem tiltæk séu í dóms- málum til rannsóknar og gagnaöflunar. Vitnaleiðslurnar skulu fara eftir reglum um meðferð opinberra mála, einkum X. og XII. kafla þeirra laga, og vísast um það til réttarfarsins. Með þessu ákvæði er nokkuð vel fyrir því séð að tryggja umboðs- manni lagaúrræði til þess að afla gagna til að byggja niðurstöðu á. 3. Andmælaréttur (9. gr.) „Nú ákveður umboðsmaður Alþingis að taka til meðferðar kvörtun á hendur stjórn- valdi og skal þá strax skýra stjórnvaldinu frá efni kvörtunarinnar nema liætta sé á að rannsókn kunni að torveldast af þeim sökum. — Jafnan skal gefa stjórnvaldi, sem kvört- un beinist að, kost á að skýra málið fyrir umboðsmanni áður en hann lýkur málinu með álitsgerð skv. b-lið 2. mgr. 10. gr." (9. gr.). Þetta ákvæði sýnist verða að skýra svo að umboðsmanni sé ætíð skylt að greina stjórnvaldshafa frá efni kvörtunar. Hann á að gera það strax ef hann telur ekki hættu á að rannsókn kunni að torvaldast af þeim sökum, ella bíður hann með það. Ljóst er að stjórnvaldshafi nýtur ætíð andmælaréttar ef máli lýkur með álitsgerð. Eins og 1. mgr. 9. gr. er orðuð er hins vegar ekki ljóst hvort það ákvæði felur í sér andmælarétt stjórnvaldshafa. Um ákvæðið segir í athugasemdum það eitt að því sé ætlað að tryggja að málsmeðferð sé drengileg gagnvart þeim stjórnvaldshafa sem hlut á að máli. I athugasemdum við sams konar ákvæði í 10. gr. frumvarpsins 1973 var hins vegar tekið af skar- ið í þessu efni og sagt að því ákvæði sé ætlað að tryggja það „að stjórn- vald eða sá opinberi sýslunarmaður sem kvörtun beinist gegn fái fullt tækifæri til að verja sig, eða m.ö.o. að tryggð sé drengileg meðferð máls hans.“ Þar var því gert ráð fyrir því að í kjölfar tilkynningar um efni kvörtunar gæfist viðkomandi stjórnvaldshafa ætíð kostur á að skýra mál sitt. I greinargerð með lögunum er ekki að finna leiðbeiningu um það hvernig skýra eigi orðalagið „nema hætta sé á að rannsókn kunni að 266

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.