Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Blaðsíða 39
sjálfur, hversu margir dómarar sitji í dómi í hverju máli með þeirri takmörkun
þó, sem gildir um opinber mál. Hins vegar er kveðið svo á í lögunum, að í
málum, þar sem fimm eða sjö dómarar skipa dóm, skuli eiga þar sæti þeir,
sem elstir eru að starfsaldri við Hæstarétt. Varadómari verður þá ekki kvaddur
til setu í dómi, nema tölu dómara verði ekki náð í málinu vegna forfalla eða
vanhæfis reglulegra dómara, en þetta var áður óbundið af öðru en forföllum
einhvers dómara í tilteknu máli. Loks er heimilað í hinum nýju lögum, að
kveðja megi til varadómara, ef sérstaklega stendur á vegna anna, þótt sæti
einskis hæstaréttardómara sé autt. Þessi heimild takmarkast af þeim áskilnaði,
sem í lögunum er um skipan fímm eða sjö manna dóms.
II.
Frá stofnun Hæstaréttar hafa 36 menn verið skipaðir dómarar við réttinn, þar
af ein kona. Meðalaldur dómara við skipun er um 51 ár. Yngstur hefur Gizur
Bergsteinsson verið skipaður hæstaréttardómari, 33 ára og fimm mánaða gamall.
Næstyngstur var Ámi Tryggvason, 33 ára og níu mánaða gamall. Elstur til að
hljóta skipun við Hæstarétt hefur Kristján Jónsson dómstjóri verið, 67 ára, og
Halldór Daníelsson var 64 ára við skipun. Þess er þó að gæta, að báðir höfðu
starfað í áfrýjunardómstóli um langt skeið, er þeir vom skipaðir fyrstu dómarar
Hæstaréttar, Kristján Jónsson í 32 ár og Halldór Daníelsson í 11 ár. Að þeim
frátöldum hefur Gunnai' M. Guðmundsson verið elstur við skipun, 63 ára gamall.
Starfsaldur hæstaréttardómara í réttinum hefur verið afar misjafn. Lengst
hefur Gizur Bergsteinsson setið í embætti, í 36 ár og fimm mánuði. Næstlengst
hefur dr. Þórður Eyjólfsson gegnt dómaraembætti við Hæstarétt, í 30 ár og
þrjá mánuði. Skemmstan starfstíma skipaðra dómara við réttinn á dr. Gunnar
Thoroddsen, átta og hálfan mánuð. Meðalstarfsaldur hæstaréttardómara, ann-
arra en núverandi dómara, er rúm 12 ár.
Af 36 dómumm Hæstaréttar hafa 17 verið starfandi dómarar við skipun í
réttinn, þar af þrír dómarar Landsyfirréttar (Kristján Jónsson, Halldór Daníels-
son og Eggert Briem), sjö borgardómarar (Árni Tryggvason, Einar Arnalds,
Magnús Thoroddsen, Guðmundur Jónsson, Bjarni K. Bjarnason, Hrafn Braga-
son og Garðar Gíslason), fjórir sakadómarar (Jónatan Hallvarðsson, Logi Ein-
arsson, Halldór Þorbjömsson og Haraldur Henrysson) og þrír bæjarfógetar eða
sýslumenn, en þeir voru jafnframt lögreglustjórar (Páll Einarsson, Sigurgeir
Jónsson og Pétur Kr. Hafstein). Sjö dómaranna vom prófessorar við skipun
(Lárus H. Bjamason, dr. Einar Arnórsson, dr. Þórður Eyjólfsson, Magnús Þ.
Torfason, dr. Ármann Snævarr, Þór Vilhjálmsson og Markús Sigurbjörnsson)
og einn dósent (Guðrún Erlendsdóttir), sem hafði áður starfað sem hæsta-
réttarlögmaður um árabil. Níu dómarar aðrir hafa komið úr stétt hæstaréttar-
lögmanna (Jón Ásbjörnsson, Láms Jóhannesson, Benedikt Sigurjónsson, Bjöm
Sveinbjömsson, Guðmundur Skaftason, Benedikt Blöndal, Hjörtur Torfason
og Gunnar M. Guðmundsson) og var einn þeima ríkislögmaður (Gunnlaugur
Claessen), einn dómari var skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu (Gizur
33