Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Qupperneq 47

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Qupperneq 47
Þessi orð segja sitt, en segja ekki alla söguna. Hin umfangsmikla réttarfars- breyting, sem tók gildi 1. júlí 1992, fólst ekki síst í því, að langflest mál, sem verið höfðu dómsmál, breyttu um eðli, ef svo má segja, og urðu viðfangsefni handhafa framkvæmdarvaldsins, aðallega sýslumanna, sem jafnframt hættu dómstörfum. Þetta fékk staðist, af því að hér var um að ræða verkefni sem ekki fólust í „að skera úr tilteknu réttarágreiningsefni“. Til dæmis er starfs- maður ríkisins, sem reynir að koma því til leiðar, að borgari greiði skatta sína og leggur veðband á eignir hans svo að fram geti farið nauðungarsala, sjaldn- ast að skera úr réttarágreiningi. Ástæðan til þess, að ekki hefur verið greitt, er langoftast annaðhvort féleysi eða viljaleysi en ekki ágreiningur um gjald- skyldu eða fjárhæð. Úr slíkum ágreiningi verður að skera í dómsmáli, ef upp kemur. í því sem hér að framan var tekið upp um dómstóla, kemur fyrir orðið „sjálfstætt“. Það vísar í það sem segir í upphafi 61. gr. stjómarskrárinnar: „Dómendur skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögunum“. I því felst að þeir eiga ekki að taka við fyrirmælum frá stjómvöldum, en það orð er í þessari grein notað um alla framkvæmdarvaldshafa. En það hefði gert skilgreininguna eða lýsinguna ítarlegri, ef fram hefði komið, að sjálfstæðið getur þýtt, að stjórnleg tengsl við aðrar ríkisstofnanir eigi ekki að vera til staðar. Ein hlið þess skipti miklu við réttarfarsbreytinguna 1992, sú að sami maður skyldi ekki vera bæði dómari og lögreglustjóri. Oft hefur á það reynt, hvar „embættistakmörkin“ eða valdmörkin eru milli dómstóla og stjómvalda, ekki síst við ákvörðun skatta og tolla, en einnig t.d. við ákvörðun um forræði barna. Um þetta verður fjallað hér á eftir. Sérstæð sakarefni hafa komið upp, þar sem í tíð eldri reglna þótti skipta sköpum um úrslit, hvort embættismaður hefði tekið ákvarðanir sem dómari eða í stjórn- sýslu.3 Tengsl dómstóla og Alþingis eru einnig flókin. Vafi getur komið upp um það, hvort tiltekin stofnun (oftast ráð eða nefnd) sé dómstóll. í lögum nr. 62/1994 um Mannréttindasáttmála Evrópu er að finna ákvæði í 6. gr. sáttmálans, sem tryggir aðgang að „dómstóli“ sbr. og 2. gr. 7. samningsviðauka. Þetta hefur orðið tilefni málaferla í Strasbourg, enda er það sums staðar svo erlendis, að endanlegar ákvarðanir um borgaraleg réttindi em teknar af ýmiss konar nefndum, sem hafa sum en ekki öll einkenni almennra dómstóla. Þegar þetta er skrifað er til úrlausnar hjá EFTA-dómstólnum í Genf, hvort áfrýjunamefnd í fínnsku tollstjóminni sé dómstóll í skilningi sáttmálans um Evrópska efnahagssvæðið. Það verður ekki rætt hér, þó að það gefi tilefni til að rýna með nákvæmni í dómstólshugtakið. Ýmsar mikilvægar nefndir og ráð hér á landi, sem kveða á um réttindi og skyldur borgaranna, hafa á síðustu árum fengið á sig meira dómstólasnið en áður var, þó að þær teljist til hand- hafa framkvæmdarvalds og ákvarðanir þeirra verði bomar undir hina almennu dómstóla. Svo er t.d. um barnaverndarráð og yfirskattanefnd. Myndu senni- 3 T.d. hrd. 1975 221. 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.