Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Blaðsíða 67
3. LÓÐIN LINDARGATA 2 VALIN
Lóðin Lindargata 2 (staður 18) kom seint til umræðu og er hugmyndin um
hana komin frá hæstaréttardómurum sjálfum. Lóðin þótti hafa ótvíræða kosti og
samræmast vel þeim sjónarmiðum að nýbygging Hæstaréttar Islands sé best stað-
sett í miðbæ Reykjavíkur, þó svo að staðsetningin væri á margan hátt viðkvæm.
í sérstakri greinargerð Ingimundar Sveinssonar um lóðina segir m.a.:
„Við fyrstu sýn kann að virðast erfitt að koma fyrir byggingu undir Hæstarétt
á þessum stað. Eftir að hafa skoðað málið frá ýmsum hliðum er álit mitt að
bygging á þessum stað sé ekki aðeins möguleg heldur geti hún jafnframt stuðl-
að að endurbótum og fullnaðarfrágangi á svæðinu, sem þannig yrði betur sam-
boðið þeim mikilvægu byggingum sem að því liggja“.
Ennfremur segir í greinagerðinni: „Ekki má ganga nærri Safnahúsinu, sem
að margra dómi er glæsilegasta bygging landsins. Gæta verður þess að ný-
bygging styrki fremur en skaði Safnahúsið, sem þegar líður nokkuð fyrir ná-
býli við Þjóðleikhúsið“.
Þetta var sú lóð, sem ákveðið var að leggja til grundvallar fyrir samkeppni
um nýbyggingu Hæstaréttar Islands.
4. SAMKEPPNI MEÐAL ARKITEKTA
Fyrst þurfti að kanna nánar framtíðarþarfir réttarins fyrir húsnæði. Starfs-
menn Húsameistara ríkisins framkvæmdu þessa könnun, ásamt þeim fulltrúum
Hæstaréttar er sátu í byggingamefnd. Einnig var haft samráð við annað starfs-
fólk réttarins. Var þessi könnun unnin mjög nákvæmlega og miðuð við að
starfsfólki réttarins fjölgaði í framtíðinni og umsvif réttarins ykjust. Gerður
var fjöldi uppdrátta og líkön sett upp. Að því loknu ákvað ríkisstjómin að
byogingin yrði reist á þessum stað.
í maí 1993 var efnt til samkeppni um nýbyggingu- Hæstaréttar í samráði
við Arkitektafélag íslands. Leitað skyldi að hugmynd sem fæli í sér sjálfstæða
og hagkvæma byggingu sem félli vel að skilgreindri þörf æðsta dómstóls þjóð-
arinnar. Sérstaklega var tekið fram að byggingin ætti að vera virðuleg en lát-
laus og hún mætti ekki á nokkum hátt skyggja á þær byggingar sem eru í
næsta nágrenni.
Dómnefnd var síðan skipuð. Tilnefnd af dómsmálaráðherra voru: Dagný
Leifsdóttir deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu, Hrafn Bragason hæstarétt-
ardómari og Steindór Guðmundsson forstöðumaður framkvæmdadeildar Inn-
kaupastofnunar ríkisins. Þeir sem tilnefndir voru af Arkitektafélagi íslands
voru: Garðar Halldórsson húsameistari ríkisins og Tryggvi Tryggvason arki-
tekt FAÍ. Ritari dómnefndar var Guðjón Magnússon arkitekt FAI og trúnaðar-
maður var Ólafur Jensson forstöðumaður. Ráðgjafar nefndarinnar vom Stefán
Hermannsson borgarverkfræðingur, Þorvaldur S. Þorvaldsson forstöðumaður
borgarskipulags og Garðar Gíslason hæstaréttardómari.
Dómneindinni bámst alls 40 tillögur. Hún lauk störfum 4. ágúst 1993 og veitti
61