Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Page 68
tillögu nr. 10 fyrstu verðlaun. Höfundar hennar reyndust vera arkitektamir
Margrét Harðardóttir og Steve Christer. Dómsmálaráðherra ákvað með bréfi 19.
ágúst s.á. að nýbygging Hæstaréttar verði í samræmi við þessa niðurstöðu.
5. LÝSING HÚSSINS
Arkitektar hússins lýstu húsinu með tillögu sinni og segir þar m.a:
„Nýbygging Hæstaréttar er breiðust og hæst í vesturenda, við Ingólfsstræti,
svo hlutföll gaflveggjar nái jafnvægi við Amarhvál og Safnahúsið, en einnig
til að draga fyrir norðanáttina og mynda skjólgóða grasflöt á suðausturhluta
lóðarinnar. Aðalinngangur almennings í Hæstarétt er á suðvesturhomi hússins,
upp nokkur þrep eða skáhalla frá Ingólfsstræti. Þrepin eru andspænis göngu-
stíg, sem liggur yfir Arnarhól miðjan, handan götunnar. Miðja hólsins er mörk-
uð áfram af trjálínu sunnan við húsið, sem gengur í austur að Þjóðleikhúsinu.
Vesturgafli Hæstaréttar er snúið um 2 gráður í austur og norðvesturhornið
dregið í boga svo inngangur í Amarhvál sjáist vítt að. Húsin standa næst hvort
öðra á horni Ingólfsstrætis, en fjarlægjast er austar dregur Lindargötu. Þannig
myndast gott rými við væntanlegan aðalinngang Arnarhváls um núverandi dyr
Hæstaréttar. Austurhluti Hæstaréttar er lægri við þetta nýja inngangstorg, svo
þar nýtur góðrar birtu og torgið tengist betur grasflötinni sunnan við húsið...
Inngangur dómara er á miðri norðurhlið hússins, skáhallt á móti nýjum inn-
gangi í stjórnarráðið.
Innra skipulag er mótað af ákvæðum forsagnar um aðskilnað almennings
og dómara... Frá aðalinngangi liggja gönguhallar eftir húsinu endilöngu, sá
fyrri upp hálfa hæð í aðaldómsal og sá síðari áfram upp í minni dómsal, þing-
sal og móttökuherbergi forseta Hæstaréttar við enda hallans. Skáhallamir eru
í háu opnu rými, sem tengist aðalinngangi og kaffistofu. Þaðan sjást allir hlut-
ar hússins, sem að almenningi eða gestum réttarins snúa...
Aðstaða lögmanna og viðtalsherbergi eru í lágbyggingu austan við aðal-
dómsal, með beinum inngangi lögmanna í norðausturhorni salarins. Aðstaða
dómara er í bogadregnu norðvesturhorni annarrar hæðar og veitir beina inn-
göngu í báða dómsali og þingsal...
Aðaldómsalur nýtur dagsbirtu um norðurglugga auk þess sem sandblásinn
glerflötur er við inngönguhurð í suðurvegg. Minni dómsalurinn er lýstur um
sambærilegan glerflöt við inngönguhurðir í suðurvegg, en auk þess er dags-
birtu beint niður í salinn yfir málflutningssvæðið, um keilulaga op, frá þak-
glugga. Aðaldómsalur er breiður og þar er lofthæð mikil, en sá minni er hlut-
fallslega lægri og lengri...
Efsta hæð hússins er almennt vinnusvæði dómara. Skrifstofur dómara era
beggja vegna gangs, sem liggur frá stigahúsi, þrengist og opnar útsýni austur
Lindargötu. Skrifstofumar eru látlausar með bókahillum á glugga- og
hurðarvegg. Skrifstofur ritara eru næst inngangsdyrum á hæðina en í norð-
vestur horni eru fundarherbergi með góðri lofthæð og útsýni yfir höfnina.
Bókasafn er í suðvesturhomi hæðarinnai' og úr lesstofuhomi er útsýni yfir
62