Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Page 78

Tímarit lögfræðinga - 01.02.1995, Page 78
efnum þar sem engin lög eru fyrir. Það er þá einkum gert á grundvelli réttar- heimilda eins og eðlis máls og meginreglna laga. Þegar dómstólar skera þann- ig úr álitaefnum í fyrsta sinn setja þeir reglu. Ýmsar reglur fjármunaréttar, skaðabótaréttar og stjórnsýsluréttar eiga rót að rekja til slíkra fordæma. Hér skulu fyrst nefndir dómar þar sem Hæstiréttur hefur mælt fyrir um fé- bótaábyrgð ríkisins. Hæstaréttardómar 1943, bls. 256. Tveir lögreglumenn tóku L þar sem hann var ör af víni fyrir utan veitingahús. Ekki var það talið lögreglumönnunum til áfellis þótt þeir tækju L fastan. Hins vegar þótti sýnt að þeir hefðu tekið L of föstum tökum, jafnvel þótt hann hefði reynt að veita mótspymu. L höfðaði skaðabótamál meðal annars gegn fjármálaráðherra f.h. ríkis- sjóðs og í dómi Hæstaréttar sagði þetta: „Réttlátt þykir og eðlilegt, að þjóðfélagið beri ábyrgð á mistökum sem þessum að því leyti sem þau teljast opinbemm starfs- mönnum til ógætni, en verða ekki rakin til háttsemi þess aðila, sem tjónið bíður. Virðist sú meðferð máls og leiða til aukins öryggis þjóðfélagsþegnum og miða til varnaðar". - Voru L samkvæmt þessu dæmdar bætur. Hæstaréttardómar 1954, bls. 104. Aðfaramótt 19. janúar 1950 handtók G, lögreglumaður, P með töluverðum harð- ræðum og færði hann til yfirheyrslu í skrifstofu rannsóknarlögreglunnar. P var gefið að sök að hafa verið á ferli fyrir utan glugga hjá nafngreindri stúlku fyrr um nóttina og raunar einnig aðfararnótt 16. janúar. Allar sannanir brast fyrir því að P hefði verið þarna á ferð og var G dæmd refsing samkvæmt 131. gr. hegningarlaganna nr. 19/1940. Handtakan var í Hæstarétti talin saknæmt misferli G án þess að P hefði gefið tilefni til þeirra aðgerða. Síðan sagði í dómi Hæstaréttar: „Þegar handtakan fór fram, voru enn í gildi lög um skaðabætur fyrir gæzluvarðhald að ósekju o. fl., nr. 28/1893. Þau lög höfðu ekki að geyma ákvæði um bætur fyrir handtöku. og á þeim tíma, er þau voru sett, var ekki talið, að ríkið bæri fébótaábyrgð á tjóni af aðgerðum opinberra starfsmanna að öðru leyti en því, sem mælt var í sérstökum lögum. Nú hefur réttarþróunin hins vegar orðið sú, að á þessu sviði hefur verið lögð á ríkið víðtækari ábyrgð en áður var“. Þótti P samkvæmt meginreglu áður- greindra laga hafa öðlazt rétt til bóta úr hendi ríkissjóðs vegna hinnar ólögmætu handtöku. í lög nr. 27/1951 um meðferð opinberra mála - fyrstu heildarlögin um þetta efni - voru í XVIII. kafla sett almenn ákvæði um bætur handa sökuðum mönnum og þar á meðal fyrir ólögmæta handtöku og gæzluvarðhald. Slík ákvæði hafa síðan verið í lögum um meðferð opinberra mála, sbr. nú lög nr. 19/1991 XXI. kafla. í fyrrtalda dóminum eru dæmdar bætur með skírskotun til þess að réttlátt þyki og eðlilegt að þjóðfélagið beri ábyrgð á mistökum sem þessum, enda sé slík niðurstaða til aukins öryggis og miði til vamaðar. Álitaefni eins og þetta 72
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.