Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Side 22
ingagreiðslu er hjá kröfuhafa, sé ekki um annað samið, samkvæmt meginreglu
kröfuréttar og þarf því skuldari sem á að inna af hendi peningagreiðslu að hafa
frumkvæði að réttum skilum á heimili eða starfstöð kröfuhafans. Aðiljarnir geta
því ekki báðir haldið að sér höndum og ætlast til þess að hinn eigi að hafa
frumkvæðið. Greiðslustaður, þegar skuldari á að inna af hendi aðra greiðslu en
peninga, er hjá skuldaranum.35 Ljóst er þegar skylda stendur til að afhenda fast-
eign að greiðslustaðurinn er þar sem fasteignin er.
6.4 Trygging sem afléttir haldsrétti
Unnt er að setja tryggingu fyrir greiðslu skaðabóta og vaxta og koma þannig
í veg fyrir að gagnaðilinn geti haldið eftir því sem honum ber að skila. Er sá
kostur nauðsynlegur til þess að unnt sé að leysa úr þeim ógöngum sem mál geta
verið komin í.
7. RIFTUN VEGNA GALLA
Lýsing sú sem sett hefur verið fram á skilyrðum og framkvæmd riftunar er
einkum miðuð við ákvæði 32. og 33. gr. fkpl. sem taka til riftunar vegna afhend-
ingardráttar seljanda.
Um skilyrði riftunar þegar um galla er að ræða gilda ákvæði 42. gr. fkpl.
Samkvæmt I. mgr. 42. gr. er einnig gerð sú krafa að skilyrðinu um verulega
vanefnd sé fullnægt til þess að heimilt sé að rifta vegna galla. Um skilyrðin að
öðru leyti vísar 3. mgr. 42. gr. til 3. mgr. 32. gr. og 33. gr. laganna, þ.e. til reglna
um riftun vegna afhendingardráttar. Ekki er vísað til 2. mgr. 32. gr. og mætti af
því draga þá ályktun að ekki sé heimilt að setja viðbótarfrest þegar um galla er
að ræða. Þetta er ekki alls kostar rétt. Viðbótarfrestur er reyndar fyrst og fremst
úrræði sem hentar að beita við afhendingardrátt seljanda eða greiðsludrátt kaup-
anda. Reglur um viðbótarfrest henta síður um galla. I 2. mgr. 42. gr. eru á hinn
bóginn ákvæði um skyldu kaupanda til að rifta innan sanngjams frests frá því
að hann vissi eða mátti vita um gallann, eða eftir að frestur í tilkynningum sam-
kvæmt 39. og 40. gr. eru liðnir. Þessar reglur koma að nokkru í stað reglnanna
um viðbótarfrest við afhendingar- og greiðsludrátt, því að þær miða við að
kaupandi setji seljanda frest til úrbóta á galla, en geri hann það ekki ber honum
að rifta innan sanngjams frests, ella glatar hann þeim rétti.
Að öðru leyti er ekki sérstök ástæða til umfjöllunar um riftun kaupanda
vegna galla.
35 Bernhard Gomard: Ydelsen, bls. 137.
130