Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Side 65
að sömu sjónarmiða gætir m.a. í 1. mgr. 5. gr. og 17. gr. Lúganósamningsins sem
ætlað er að vemda veikari aðila samningssambandsins.
Með hugtakinu vinnusamningar er átt við einstaka samninga launþega við
atvinnurekendur en ekki heildarkjarasamninga. Þó getur lagaval samkvæmt 6.
gr. tekið til ákvæða í heildarkjarasamningum ef litið verður svo á að reglurnar
séu, annað hvort lögum samkvæmt eða vegna ákvæða heildarkjarasamninga,
hluti af ráðningarsambandinu og veiti launþega réttarvemd sem hann verður
ekki sviptur með samningi um lagaval til hagsbóta fyrir lög annars lands. Þá er
með vinnusamningi einungis átt við ráðningarsamband en ekki samninga við
sjálfstætt staifandi sérfræðinga, t.d. umboðsmenn.138
í 1. mgr. 6. gr. ræðir um réttarstöðuna þegar samið er um lagaval, en 2. mgr.
6. gr. tekur á því hvaða lög gildi þegar ekki hefur verið samið um lagaval
7.2 Þegar samið er um lagaval
Aðilum að vinnusamningi er heimilt að semja um lagaskil með þeim tak-
mörkunum sem leiða af I. mgr. 6. gr. Lagaval í vinnusamningi má ekki leiða til
lakari réttarstöðu launþega en þeir myndu njóta samkvæmt þeim ófrávíkjanlegu
reglum sem leiða myndi af 2. mgr. 6. gr. sem tekur til þeirra tilvika þegar ekki
er samið um lagaval.
Þær ófrávíkjanlegu reglur sem 1. mgr. 6. gr. vísar til eru ekki aðeins reglur
sem varða vinnusamninginn sem slíkan heldur einnig t.d. reglur sem leiða má af
heildarkjarasamningum og almennum lögum, svo sem um öryggi og hollustu-
hætti á vinnustöðum, enda þótt þær séu hér á landi taldar á sviði opinbers réttar.
Þó að orðið vinnusamningur sé notað í ákvæðinu á það í reynd við allar aðstæður
þar sem vinnusamband er fyrir hendi, óháð því hvort skriflegur vinnusamningur
hefur verið gerður eða ekki, enda eiga ófrávíkjanlegar reglur um vinnusamninga
við eftir sem áður.139
Afleiðing 1. mgr. 6. gr. getur orðið sú að beita skuli lögum tveggja landa um
vinnusamning. Hafi aðilar samið um að lög tiltekins lands gildi um vinnusamn-
ing gilda þau að svo miklu leyti sem þau veita launþega betri réttarstöðu en leiða
myndi af þeim lögum sem gilda þegar ekki hefur verið samið um lagaval, sbr. 2.
mgr. 6. gr., og veita launþega betri réttarstöðu.
7.3 Þegar ekki er samið um lagaval
í 2. mgr. 6. gr. er að finna reglu um það hvemig fara skuli með vinnusamn-
inga ef ekki er samið um lagaval. En einnig mælir hún fyrir um það samkvæmt
138 Sjá t.d. Peter Arnt Nielsen: Intemational privat- og procesret, bls. 521; Torben Svenné
Schmidt: Intemational formueret, bls. 232 og Lennart Pálsson: Romkonventionen, bls. 83.
139 Sjá Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 704. Sjá einnig Mario Giuliano & Paul Lagarde: OJ 1980
C 282, bls. 25. Þeir benda á að í upprunalegum drögum að Rómarsamningnum hafí orðið „vinnu-
samband" verið notað, en því haft verið breytt á síðari stigum í orðið „vinnusamning".
173