Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Page 84

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2003, Page 84
um lögum þegar mál er rekið fyrir íslenskum dómstóli eða í lögum þeim sem 9. gr. vísi til, enda sé samningur eða ráðstöfun gild samkvæmt þeirri grein, að því tilskildu að hægt sé að koma slíkri sönnunarfærslu við í dómstólsríkinu. Með sönnunarfærslu er m.a. átt við aðila- og vitnaskýrslur, mats- og skoð- unargerðir, sérfræðiskýrslur o.fl. íslenskt réttarfar byggist á meginreglunni um frjálsa sönnunarfærslu. í ljósi þessa má telja ólíklegt að sú heimild 2. mgr. 14. gr. að beita þeim lögum sem gilda um formlegt gildi samnings samkvæmt 9. gr. hafi raunhæfa þýðingu í dómsmálum hér á landi. Loks skal bent á að lögin hafa ekki að geyma sérstakar reglur um sönnunarmat og gilda því lög dómstólsríkis- ins í þeim efnum, sbr. hér á landi reglan um frjálst sönnunarmat dómara í 44. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. 14. BANN VIÐ HEIMVÍSUN OG FRAMVÍSUN Akvæði 15. gr. fjallar um bann við heimvísun og framvísun. Þar kemur fram að með lögum lands sem lög nr. 43/2000 vísa til sé átt við önnur lög en laga- skilareglur. Vera kann að erlendur réttur sem lagaskilaregla vísar til að beita skuli við úrlausn réttarágreinings mæli fyrir um það að reglur dómstólslandsins skuli gilda. Um þetta fjallar svokölluð renvoi regla alþjóðlegs einkamálaréttar. Reglan tekur til þess þegar lagaskilareglur eins lands (A) leiða til þess að beita beri reglum landsins B við úrlausn máls, en lagaskilareglur þess lands (B) vísa aftur til reglna landsins A (heimvísun) eða jafnvel annars lands C (fram- vísun).216 Tilgangur 15. gr. er að koma í veg fyrir þessa stöðu með því að taka af skarið um það að ákvæði laganna vísa ekki til lagaskilareglna annars lands. Reglan er í samræmi við ýmsa sáttmála sem gerðir hafa verið á sviði alþjóðlegs einkamálaréttar. í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 43/2000 segir að þetta sé eðlileg regla þegar hafður sé í huga sá megintilgangur Rómarsamningsins að skapa sameiginlegar og einsleitar lagaskilareglur á því sviði sem hann tekur til. Akvörðun um það hvers lands lögum skuli beitt ráðist af ákvæðum samningsins sjálfs en ekki lagaskilarétti einstakra ríkja. Af augljósum ástæðum skipti ákvæði 15. gr. Rómarsamningsins fyrst og fremst máli þegar reglur laganna leiði til þess að beita eigi reglum lands sem ekki er aðili að honum.217 15. ORDRE PUBLIC Akvæði 16. gr. mælir svo fyrir að því aðeins sé heimilt að láta hjá líða að beita lögum tiltekins lands sem lögin vísa til að þau teljist augljóslega andstæð góðum siðum og allsherjarreglu hér á landi (ordre public). Rétt er að taka fram að í alþjóðlegum einkamálarétti flestra ríkja er það viðurkennd meginregla að beiting erlendra réttarreglna er ávallt bundin því skilyrði að viðkomandi regla sé 216 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 710. Sjá einnig um hugtakið renvoi Eggert Óskarsson: „Um alþjóðlegan einkamálarétt og viðfangsefni hans“, bls. 15. 217 Alþt. 1999-2000, A-deild, bls. 7^10. 192
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.