Árbók Háskóla Íslands

Volume

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Page 9

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Page 9
hendi fje Höllu, og varð af sundurlyndi milli þeirra mága, en nokkru síðar, er Geitir var eigi heima, »sendi Halla mann eflir Brodd-Helga ok bað at hann skyldi hitta hana. Hann fór þegar í Krossavík. Halla kvaddi liann, en hann tók vel kveðju hennar. Hón bað at hann skyldi sjá meinit, er hón liafði, ok gerði hann svá, ok kvaðst honum þungt hugur um segja. Hann hleypir vatni miklu ór sullinum, ok varð hón mjök máttlílil eptir þelta. Hón bað hann þar vera um nóttina, enn hann vildi þat eigi. Hón var angrsöm ok mælti við hann: Eigi þarf nú lengr at beiða þik hérvistar, þú munt nú lauss þykjast ok lokit liafa verkum, enn þess get ek at fæstir munu leika svá við konur sínar sem þú við mik. Brodd-Helgi fór heim aftur til Hofs ok undi illa við sinn hlut. Lifði Halla litla stund síðan ok var hón önduð er Geitir kom heim« (kap. 11.). Jeg hef tekið allan staðinn upp, af því að hann er eini slaðurinn, mjer vitanlega, í fornsögunum, sem geti átt við sullaveiki. Vápnfirðingasaga er mestöll um deilur þeirra mág- anna, sem talið er að risið hafi af því, hvernig Helga fórsl við Höllu, og er því einsætt, að nokkur sannindi eru á sög- unni um vanheilsu hennar, en nokkuð eru grunsamleg atvikin að dauða Höllu. Hvers vegna sendir Halla eflir Helga til þess að láta hann sjá meinið, og hvers vegna lileypir Helgi vatni úr því, að því er virðist að henni nauðugri? Þess er hvergi getið, að Helgi hafi fengist við lækningar, og er þó í Vápn- firðingasögu getið um Þórodd lækni þar í sveitinni. Og ef Helgi var læknir, hvers vegna framkvæmdi hann ekki þella verk, meðan Halla var á heimili þeirra áður þau skildu? Og þó svo væri, að Helgi hefði fengist við lækningar, er það næsta ólíklegt, að menn á þeim tímum hefðu dirfst að hleypa úr sullum í innýflum í lækningarskyni. Sagan um ígerðina í fæti Þórhalls Ásgrímssonar er góð bending í þessa ált og gerðist svo sem 20 árum eftir þessa atburði í Vápnfirðinga- sögu. Enginn varð til þess að gerast læknir hans, og má þó giska á, að innan um allan þann sæg, sem sótti til alþingis — ekki síst einmitt í þetta sinn, er brennumálin átti að úlkljá —, liafi einhverjir verið, sem fengust við lækningar. Og það er ekki að efa, að sjúkleiki Þórhalls hefur verið almenningi kunnur á þinginu, því að menn álilu það mikið mein, að hann gat ekki komið til Lögbergs. Engu að síður verður engum það fyrir að skera í kýlið, og var það þó á útlim. Ekki getur það kallast skynsamleg lækning, að hann sjálfur í

x

Árbók Háskóla Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.