Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Side 10

Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Side 10
6 ofboði ristir út úr því með spjóti, þegar eftirmálin eru ónj7tt. Alt þetta má telja votL þess, að á þessum tímum liaíi ekki tíðkast að skera í kýli, og þá er enn óiíklegra, að hitt hafi tíðkast að skera i innanmein. Ef treysta má sögu þessari, er tæplega nema um þrjá sjúkdóma að villast, sem Halla hafi haft: sullaveiki, kviðarvatnsýki fascitesj og eggjastokksbelg (kystoma ovariij, og hvert lreldur var verður ekki sagt eftir lýsingunni. Hvaða aðferð Heigi hafi haft til að hleypa valni úr meininu verður ekki sjeð, en hvort heldur var um sulla- veiki eða hina sjúkdómana að ræða, mátti vel búast við, að meðferð Helga hefði í för með sjer banvæna lífhimnubólgu. Ef tilgátan er rjelt, sem selt er fram hjer, að sullaveiki sje ekki komin frá Noregi, þá eru meiri líkur til þess að Halla hafi ekki liaft sull í nútíðarmerkingu, því að eftir því sem segir í Landnámu komu þeir Vopnfirðingarnir beina leið frá Noregi, og þetta gerðist tiltölulega skömmu eftir landnámið (980—990). Frá þessum tíma verður stórmikil eyða, því að næslu 200 árin verður ekki sjeð, að gelið sje um neinn sjúkling, sem telja megi sullaveikan, en þegar fram kemur um 1200 og kraftaverk biskupanna fara að verða hvað lielsta lækningin, sem sjúklingar geta átt von á, bregður fyrir nokkrum sjúk- dómslýsingum, og eiga sumar þeirra bersýnilega við sullaveiki; um aðrar er mjög vafasamt. Sögur þessar eru sumar hverjar mjög blandaðar hindurvitnum, en eins getur lýsingin ált við sullaveiki, þó menn þökkuðu lækningu meinsins áheiti á Þor- lák helga eða Guðmund góða. í Biskupas. I. 117 segir svo: »Árni hét einn virðuligr maðr; hann hafði mein mikit innan rifja ok hællligt; hann hét á liinn heilaga Þorlák biskup til heilsu sér ok balnaði þegar«. Sama sagan er einnig í Biskupas. I. 305. Þetta virðist hafa verið 1198, en skiftir lillu, því lýsing er engin önnur en þessi, að meinið var innan rifja. Það er því vel mögulegt og ekki ólíklegt, að það liafi verið sullaveiki, en alls óvist. Öðru máli er að gegna um sjúkdóm þann, sem gelið er um í Biskupas. I. 116. Þar segir: »Unas liét maðr. Hann lók sótt óhæglega þar á þinginu (þ. e. 1198); hann blés allan; gekk kviðrinn upp fur brjóslit, ok fylgdi æsiligr verkr, svá hann mátti trautt standast«. Honum balnaði þegar eftir áheit á Þorlák biskup.

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.