Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1913, Qupperneq 43
39
verið skrifað annað en alþýðleg fræðsla um orsakir veikinnar.1)
Á útlendum málum kveður mest að ritum þeirra Jóns Finsens
og Jónasar Jónassens, og má fullyrða, að til sjeu eftir þá báða
rit, sem eru íslenskri læknastjett lil sóma. Finsen skrifaði
einna mest um meðferðina, en liann jók einnig þekkingu
lækna í ýmsum öðrum atriðum veikinnar. Hann varð t. d.
fyrstur lil að halda því fram, að lífhimnubólga væri alls ekki
nauðsynleg afleiðing af því að sullir springju inn í kviðar-
holið; en það höfðu læknar haldið þangað til. Hann lók
einna fyrstur eftir því, að ofsakláði þýtur venjulega út um
líkama sjúklinganna, ef sullavatn rennur inn í kviðarholið, og
margur annar fróðleikur er í ritgerðum hans um sullaveikina.
Jónassen skrifaði bók um veikina, og gefur hann þar vísinda-
legt og glögt yfirlit yfir alt eðli veikinnar, einkenni og meðferð,
og drepur á sögu hennar á íslandi. Þótt bók lians liafi ekki að
geyma aðrar eins nýungar og rit Finsens, er hún einkar itarleg
og mun halda gildi sínu, nema kaílinn um meðferðina. Hann
hefur nú orðið að eins sögulegt gildi. Ritgerðir Hjaltalíns um
sullaveildna eru mestinegnis ritdeilur við Finsen.
Af þeim íslenskum læknum, sem nú eru á lífi, hafa ekki
aðrir skrifað neitt um sullaveiki á útlendum málum en Guð-
mundur Magnússon og Sæmundur Bjarnhjeðinsson. Nöfn ís-
lenskra og úllendra rita eftir lækna á íslandi verða talin síðar,
eftir því sem jeg hef getað fundið.
t
"VII. Meðferð sullaveikinnar á Islandi.
A. Ar:i i-iiii-.
Um varnir gegn veikinni gat auðvitað ekki verið að ræða
fyrri en vissa var fengin um orsakir hennar. Eins og áður var
sagt var það fyrsta verk Krabbe, þegar hann hafði lokið rann-
sóknum sinum lijer á landi, að skrifa dómsmálastjórninni til-
lögur sínar um varnir gegn veikinni. Árangurinn varð sá, að
stjórnin fjekk Krabbe til að skrifa alþj7ðlegan bækling2 *) um
eðli og orsakir veikinnar, og ljet úlbýta honum ókeypis.
1) í Norðurlandi (II. ár bls. 97) hefur Giiðmnndiir Hannesson
skrifað lýsingu sjúklings með sull í heila, sem hann risti í. Það mun
vera eina skiftið sem slíkt verk hefur verið unnið hjer á landi.
2) H. Krabbe: Athugasemdir handa íslendingum um sullaveikina
og varúðarreglur gegn henni. Kaupmannahöfn 1864.