Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Síða 220
Verkefni 3. árs læknanema
Geir Hirlekar. Orsakaþættir sóra- eru sýklaeyðandi peptíð með í spilinu.
Sverrir Ingi Gunnarsson. Hefur leptin áhrif á virkni psoriasis.
Kristján Dereksson. Þróun nýrrar leiðar til greiningar salýlyfjaofnæmis.
Rannsóknaverkefni Nýsköpunarsjóðs námsmanna
Siggeir F. Brynjólfsson. Immunogenicity of meningococcal congjugate vaccines in
neonates. Leiðbeinandi Ingileif Jónsdóttir, dósent.
Kynningarstarfsemi
Haldnir eru fræðslufundir tvisvar í mánuði fyrir alla sem vinna að rannsóknum í
ónæmisfræði og skyldum greinum.
Rannsóknarnámsnemar deildarinnar kynna verkefni sín á fundum sem haldnir
eru tvisvar í mánuði.
Ritstjórnarstörf
Helgi Valdimarsson. CLinical Experimental Immunology, í ritstjórn.
Helgi Valdimarsson. Scandinavian Journal of Immunolog, einn af ritstjórum.
Ingileif Jónsdóttir, Scandinavian Journat of Immunology. 2005. Blackwell. í rit-
stjórn.
Ingileif Jónsdóttir, Microbes and Immunity. 2005. Institute Pasteur, í ritstjórn.
Ingileif Jónsdóttir, PGD and Embryo Selection. A Report from and International
Conference on Preimplantation Genetic Diagnosis and Embryo Selection. The
Nordic Committee on Bioethics. Tema Nord. 2005. Ritstjóri.
Nefndastörf
Guðmundur Jóhann Arason: í stjórn European Complement Network (ECN).
Helgi Valdimarsson: Aðalmaður í stjórn Nordic Foundation for Immunology.
Ingileif Jónsdóttir, dósent: aðatmaður í Vísinda og tækniráði og vísindanefnd þess.
í dómnefnd um viðurkenningu Háskóla íslands á akademísku hæfi starfsmanna á
Landspítala - háskólasjúkrahúsi, fulltrúi (slands í stjórnarnefnd um rannsóknir og
þróun í líftækni og erfðatækni í þágu heilbrigðis innan 6. Rammaáætlunar ESB,
formaður Norrænu Lífsiðfræðinefndarinnar, í stjórn Scandinavian Society for
Immunology, í Vísindaráði Hjartaverndar, fulltrúi (slands í NOS-M (The Joint
Committee of the Nordic Medical Research Councils), fulltrúi íslands í EMRC
(Standing Committee of the European Medical Research Councils)
Sigurveig Þ. Sigurðardóttir: Formaður félags íslenskra barnalækna, í stjórn félags
íslenskra ofnæmis- og ónæmislækna.
Annað
Sædísi Sævarsdóttur voru veitt verðlaun menntamálaráðherra fyrir framlag sitt á
12. Ráðstefnu um rannsóknir í læknadeild árið 2005.
Helgi Valdimarsson var heiðraður af stjórn LSH fyrir frábæran feril sem vísinda-
maður og kennari.
Helgi Valdimarsson var gestaprófessor við læknaskólann. Ann Arbor, Michigan.
Helgi Valdimarsson vann að rannsóknum í 3 mánuði sem Fogarty Schotar við
National Institutes of Health í Bandaríkjunum.
Ingileif Jónsdóttir var í rannsóknaleyfi við Chiron Vaccines, Siena, ftalíu, á vorönn
2005.
Rannsóknastofa í sýklafræði
Starfsemi
Starfsemin var með svipuðum hætti og undanfarin ár. Á deildinni voru að jafnaði
sex sérfræðingar (3,25-5 stöðugildi), 29 lífeindafræðingar, tveir líffræðingar (einn
bættist við í hálfa stöðu) og átta aðstoðarmenn og ritarar. Fastir starfsmenn Há-
skólans voru Karl G. Kristinsson, prófessor, yfirtæknir deildarinnar, Ólafur Stein-
grímsson, dósent, og Gunnsteinn Æ. Haraldsson, framkvæmdastjóri rannsókna-
námsnefndar. allir í læknadeild. Auk þeirra sinntu allir sérfræðingar deildarinnar
og þrír lífeindafræðingar stundakennstu í lækna-, lyfjafræði-, tannlækna- og
hjúkrunarfræðideild og sjúkraþjálfun. Tveir nemendur eru í doktorsnámi við
deildina og þrír tengdir deildinni.
216