Árbók Háskóla Íslands - 30.12.2005, Síða 225
Önnur rannsóknaverkefni
Önnur minni verkefni hafa verið starfrækt, s.s. rannsóknin Siðanefndir starfstétta
undir stjórn Róberts H. Haraldssonar, dósents. Verkefnið hefur verið styrkt af
Kristnihátíðarsjóði sem og fyrirlestraröð og útgáfan Siðfræði og samtími undir
stjórn Vilhjátms Árnasonar, prófessors. Þá fékkst nýr styrkur úr Kristnihátíðar-
sjóði fyrir verkefnið Gildismat og velferð barna í neyslusamfélagi nútímans.
Þjónusta
Siðfræðistofnun veitti sem fyrr umsagnir um ýmis lagafrumvörp og skýrslur á ár-
inu og veitti fagfélögum og fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf. einkum um siða-
reglur. Hér má nefna ráðgjafarverkefni fyrir Matvæla- og fiskveiðistofnun Sam-
einuðu þjóðanna. FAO. en afrakstur þess verkefnis hefur komið út: Ethical issues
in Fisheries. FAO Ethics Series 4. Höfundar Vilhjálmur Árnason, Devin Bartley,
Serge Garcia, Róbert H. Haraldsson. Dagfinnur Sveinbjörnsson og Hiromoto Wat-
anabe. Rome: FAO 2005.
Kennsla
Átta nemendur hófu nám í starfstengdri siðfræði haustið 2005. Er þetta svipaður
hópur og síðast. Siðfræðistofnun hefur umsjón með náminu og var gerður sér-
stakur samningur milli Siðfræðistofnunar og heimspekiskorar um kennslu for-
stöðumanns í námskeiðunum Hagnýtt siðfræði og Málstofa um starfstengda sið-
fræði. Þá hefur forstöðumaður tekið þátt í mótun nýrra námsleiða á meistarastigi
í siðfræði sem hefjast haustið 2006. Siðfræðistofnun mun hafa stjórnsýslulega
umsjón með því námi.
Fyrirlestrar og ráðstefnur
Mikilvægur þáttur í starfsemi Siðfræðistofnunar er jafnan skipulagning málþinga
og fyrirlestra hvers konar. Fundur var haldinn í samvinnu við íslenska erfðagrein-
ingu í Eldborg 26. febrúar sl. Pálsstefna var haldin til heiðurs Páli Skúlasyni sex-
tugum, þann 8. og 9. apríl sl. þar sem 15 heimspekingar fjölluðu um heimspeki
Páls. Málþing um bók Guðmundar Eggertssonar Líf af lífi var haldið í samvinnu
við bókaútgáfuna Bjart 3. nóvember s.l. í Norræna húsinu. Þar héldu þau Ótöf Ýrr
Atladóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson erindi og í pallborði auk þeirra voru þau
Guðmundur Eggertsson og Vilhjálmur Árnason. Málstofa var haldin á Hugvísinda-
þingi um Fagmennsku og fjölmiðla undir stjórn Siðfræðistofnunar. en þartötuðu
þau Satvör Nordal. forstöðumaður. Róbert H. Haraldsson, dósent og Þorbjörn
Broddason. prófessor. Þá tók Vilhjálmur Árnason. prófessor og formaður stjórnar
Siðfræðistofnunar þátt í málþingi Kristnihátíðarsjóðs 1. desember.
Útgáfa
Afrakstur Pálsstefnu kom út í bókinni Hugsað með Páli í júní í tengslum við sex-
tugsafmæli hans.
Einnig styrkti Siðfræðistofnun útgáfu bókarinnar Diatog und Menschenwurde. Et-
hik im Gesundheitswesen. Munster, Vín, Berlin. London: Lit-Verlag 2005. Þýðing
Lúðvíks E. Gústafssonar á Siðfræði tífs og dauða, 2. útg. eftir Vilhjálm Árnason.
Aðstaða
Skrifstofa Siðfræðistofnunar sem verið hefur í húsnæði hugvísindadeitdar í Nýja
Garði til nokkurra ára var flutt í Aðatbyggingu haustið 2005.
Sjávarútvegsstofnun
Á árinu 2005 urðu þau umskipti á högum Sjávarútvegsstofnunar að hún rann.
ásamt Umhverfisstofnun HÍ. inn í nýja háskólastofnun með víðara verksvið: Stofn-
un Sæmundar fróða, stofnun um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir
við Háskóla íslands. Lauk þar með formtegu htutverki Sjávarútvegsstofnunar,
sem starfað hafði frá árinu 1989. Rannsóknar- og samstarfsverkefni stofnunar-
innar fylgdu henni til nýrra heimkynna. og verður þeim fram haldið þar. Verður nú
gerð grein fyrir starfi Sjávarútvegsstofnunar á síðasta starfsári hennar, 2005.
Hlutverk Sjávarútvegsstofnunar Háskóla Islands hefur verið að efta og samhæfa
menntun og hvers konar rannsóknir sem varða sjó og sjávarútveg við HÍ og
stuðla að samstarfi við atvinnulífið. vísindamenn og stofnanir heima og erlendis.
Beina aðild að stofnuninni eiga raunvísindadeild, verkfræðideild. viðskipta- og
hagfræðideitd, félagsvísindadeild og lagadeild. Stofnunin hefur umsjón með
meistaranámi í sjávarútvegsfræðum sem skipulagt er í samvinnu margra deilda.