Búnaðarrit - 01.01.1890, Blaðsíða 141
137
sem hann "byrjar, og virða þær allar, stórar og smáar
með sem allra rjettustu og sanngjörnnstu verði. Pegar
hann þannig liefur skrásett allt það, er hann á í eigu
sinni og lagt saman verðið á allri eigninni, skrásetur
iiann eins allar þær skuldir, sem á honum hvila, ef
nokkrar eru, og leggur þær einnig saman. Geri mað-
ur þetta sem rjettast og án þess að svíkja sjálfan sig,
þá sýnir þessi efnaskrá, þegar skuldir eru dregnar frá
eignum, liinn rjetta efnahag. Þessi efnaskrá er grund-
völlur uudir atvinnureikningi hans. Haldi hann svo
nákvæman reikning yfir allt það, er hann aflar ogeyðir
eða tekur inn og lætur út um eitthvert tímabil, t. d.
eitt ár, þá er tími kominn til að gera upp alla reikn-
ingana og botna þá eða lúka þeim, og sömuleiðis að
semja nýja efnaskrá. Þessi nýja efnaskrá, samanborin
við liina eldri, sýnir þá, hvort eign mannsins hefur auk-
izt eða rýrnað á tímabili því, sem liðið er. Hið sama
á lika niðurstaða reikninganna að sýna, og hlýtur þessu
hvorutveggja að bera saman, ef rjett er reiknað. En
af því að reikningarnir eru meir eða minna sundurlið-
aðir, þá sýna þeir ljósar, af hverju maður hefur haft
mestan eða minnstan liag eða óhag.
Hver reikningur er bðtnaður með því að leggja
saman báða peningadálka hans. Sje þá samtala beggja
dálkanna misjöfn, er venjulegt að setja neðan við minni
töluna svo stóra jafnaðartölu, sem þarf til að jafna
dálkana; er svo reikningnum lokað með nýrri samlagn-
ingu, er þá sýnir jafnar tölur undir báðum dálkunum.
Þessari jafnaðartölu eða lokatölu er þá gefin fyrirsögn
í línunni framan við eptir því sem við á. í viðskipta-
reikningi við annan mann sýnir hún t. d. annaðhvort
skuld viðskiptanda, ef liún þarf að koma undir inn-
lagsdálk lians til uppfyllingar, eða þá heimting, er