Hugur - 01.01.1992, Page 6
INNGANGUR RITSTJÓRA
Þá kemur Hugur fyrir sjónir lesenda í fjórða sinn, á réttu útgáfuári og
óskattlagður. Efnið er mjög fjölbreytt en þemað þó skýrt.
Að þessu sinni birtast tvö viðtöl í tímaritinu; annað var tekið í
tilefni af komu Matthew Lipmans til Islands en hitt, við Sir Karl
Popper, er eldra og viðameira. Það má kannski deila um það hvort
viðtöl eigi yfir höfuð erindi í Hug, en eins og mörgu öðru efni sem
þangað ratar er þeim ætlað að vekja áhuga lesenda og hvetja þá til að
kynna sér höfundana og verk þeirra mun betur en nokkur kostur væri
að gera í tímariti. Við megum ekki gleyma því að Hugur er tímarit
Félags áhugamanna um heimspeki og á því að þjóna öðrum þræði
því markmiði félagsins að vekja áhuga á heimspeki og vera vett-
vangur fyrir umræður um hana. Fylgir því sú ósk að fleiri leggi hönd
á lyklaborð og leggi tímaritinu til efni. Slíkt framlag getur verið með
ýmsu móti: Sendibréf eins og það sem Kristján Kristjánsson sendi
ritstjóra og lesendum; greinar með hefðbundnu sniði eða umfjöllun
um bækur sem vekja áhuga manna, innlendar sem erlendar. Til að
glæða þennan áhuga höfum við Gunnar Harðarson tekið saman stutt
yfirlit yfir það helsta sem gefið hefur verið út af heimspekilegu efni
síðustu árin. Við höfum örugglega gleymt ýmsu og biðjum við
lesendur að virða okkur það til vorkunnar og senda okkur upplýsingar
um það sem í yfirlitið vantar.— Formaður félagsins hefur raunar
verið mér stoð og stytta við þessa útgáfu, bæði hvað varðar efnisval
og yfirlestur, og kann ég honum bestu þakkir fyrir.
Þema þessa heftis er heimspekikennsla á grunn- og framhalds-
skólastigi, en s.l. sumar var haldin áhugaverð ráðstefna um það efni á
vegum félagsins og Heimspekiskólans. Þetta er efni sem eðlilega
brennur mjög á þeim sem lagt hafa sund á heimspekinám, hér heima
og erlendis, en einnig hinum sem vilja sjá veg heimspekilegs hugsun-
arháttar sem mestan. Raunar má segja að vegur, virðing og vett-
vangur heimspekilegrar orðræðu hafi tekið stakkaskiptum á síðustu
tveimur áratugum, eða frá því að formleg kennsla í heimspeki var
tekin upp við Háskóla íslands. En þótt yel hafi tekist til með fyrstu
skrefin á þeirri braut að skapa íslenska heimspekihefð, er enn langur
vegur framundan og margt sem þarf að þýða, rita og rökræða. Það er
von mín að Hugur haldi áfram að vera verðugt faratæki á þeirri
skemmtilegu leið sem fyrir höndum er.
Agúst Hjörtur Ingþórsson