Hugur - 01.01.1992, Síða 22
20
Bryan Magee
HUGUR
Popper fór frá Vínarborg árið 1937 og var styrjaldarárin á Nýja
Sjálandi. Þar skrifaði hann, á ensku, tveggja binda verk sem gerði
hann fyrst verulega frœgan meðal enskumœlandi fólks, The Open
Society and its Enemies (Opna þjóðfélagið og óvinir þess). Það er
stórbrotin og kröftuglega rökrœdd framsetning á málstað lýðrœðisins
°8 8e8n alrœðinu — og einnig gegn helstu heimspekilegum
andstœðingum lýðræðisins, einkum Platóni og Marx. Minni bók, The
Povetry of Historicism (Örbirgð söguhyggjunnar), sem fjallar um
aðferðir frœðilegra félagsvísinda, var upphaflega gefin út sem
greinarflokkur um leið og Opna þjóðfélagið og má líta á þessar tvcer
bœkur sem samstœður. Á sama hátt má líta á ritið Conjectures and
Refutations (Tilgátur og afsannanir) sem samstœðu með hinni frjóu
frumsmíð, Rökfræði vísindalegrar rannsóknar. Síðan 1945 hefur
Popper verið breskur þegn og starfað við Hagfrœðiskóla Lundúna
(London School of Economics), þar sem hann lét nýlega af störfum
sem prófessor í rökfrœði og vísindalegri aðferðafrœði.
andstæðingur og óvæginn gagnrýnandi þessarar kreddu rökspekinga og sýndi fram
á að merkingarleysiskvarði þeirra fengi ekki staðist þó ekki væri nema vegna þess
að hann gerði sjálfa kenninguna merkingarlausa eða útrýmdi henni, og þar að auki
leiddi hann einungis til innantóms orðaskaks, skólaspeki. Á Popper heiðurinn af
því að vera höfuðbani þessarar kenningar af stórasannleiksætt. — Sem vísinda-
heimspekingur mun Popper þekktastur fyrir kenningu sína um aðferð til að
afmarka raunvísindin, þ.e. mælikvarða sem hann telur að hægt sé að nota til að
draga markalínu milli raunvísinda og ekki-raunvísinda — án þess að halda því
fram að öll önnur orðræða en raunvísindaleg orðræða sé bull! Er hér á ferðinni
hinn frægi (eða alræmdi!) afmörkunar- eða afsannanleikakvarði Poppers. Það er
hugmyndin um „prófanleika, eða afsannanleika, sem mælikvarða á vísindalegt
einkenni kenningar" eins og Popper kemst að orði í samtalinu. — Einn höfuðkostur
Poppers sem heimspekings er sá hversu skýr hann er í framsetningu. Hann felur
ekki loðna og óljósa hugsun á bak við tvírætt eða margrætt orðalag. Hann gerir sér
far um að setja skoðanir sínar þannig fram að unnt sé að koma höggi á þær, þ.e.
gagnrýna þær. Og rökfærslan er frábær. Tel ég hann mesta rökfærslumeistara í
heimspeki sem ég hef komist í kynni við. Heimspekilega afstöðu sína hefur Popper
nefnt gagnrýna rökhyggju (critical rationalism). En nafngiftir út af fyrir sig skipta
ekki máli að hans dómi. — Bestu kynningu á þekkingarfræði Poppers og þróunar-
hyggju er að finna í Ohjective Knowledge, en besta inngang að hugsun hans
almennt og yfirleitt tel ég vera að fá í ritinu Conjectures and RefutationslTilgátur
og afsannanir (London: Routledge & Kegan Paul, 1963). — Til skýringar á því að
Magee ávarpar hann Sir skal þess getið að Bretadrottning hefur heiðrað hann með
þeirri nafnbót. Popper varð níræður á þessu ári, 1992.
[Þýð.]