Hugur - 01.01.1992, Page 72
70
Atli Harðarson
HUGUR
Námsgreinum er skipt í 9 flokka sem eru: Móðurmál, erlend mál,
samfélagsgreinar, raungreinar, stærðfræði, tölvufræði og vélritun,
verk- og listgreinar, sérgreinar brauta (t.d. í iðnnámi) og íþróttir.
Þeir sem bjuggu þessa námskrá til hafa trúlega lesið Aristóteles og
áttað sig á því að maðurinn er félagsvera, því þeir flokka öll fræði sem
fjalla á einn eða annan hátt um mannlífið með samfélagsgreinum. Þar
er heimspeki sett ásamt félagsfræði, landafræði, námstækni, sögu,
sálfræði, trúarbragðafræði og fleiri greinum.
Námskráin kveður á um hve mörgum einingum í hverjum flokki
þarf að ljúka til að útskrifast af hinum og þessum brautum og tiltekur
oftast að þar af skuli svo og svo margar vera í þessari eða hinni
greininni. Sem dæmi má taka að á málabraut skulu nemendur Ijúka 12
einingum í samfélagsgreinum, þar af að minnsta kosti 2 í félagsfræði
og 5 í sögu. Það er svo á valdi hvers skóla að ráðstafa þeim fimm
einingum sem eftir eru. Við suma skóla er nemendum á málabraut til
dæmis gert að nema sögu til 7 eininga en leyft að velja sér sjálfir þær
þrjár einingar sem á vantar. Slíkt val kallast bundið því skylt er að
velja einhverja samfélagsgrein.
Fyrir þá sem eru óvanir þessu tali um einingar má geta þess að
stúdentspróf er 140 einingar og 1 eining er tvær kennslustundir á viku
í eina önn, eða hálft skólaár. Flestir áfangar eru þriggja eininga og
kenndir sex kennslustundir á viku eina önn. Nokkuð er líka um
tveggja eininga áfanga.
Á flestum stúdentsprófsbrautum er 5 einingum í samfélagsgreinum
óráðstafað. Á félagsfræðibraut eru þær þó 13. Þarna geta skólar fyllt
upp í með heimspeki. Þeir geta líka látið nemendum eftir að velja
sjálfir milli heimspeki og annarra greina. Svo geta þeir auðvitað fyllt
þetta svigrúm með sálfræði, sögu, landafræði eða öðru.
Auk þess sem Námskráin skilur eftir þetta svigrúm til að nemendur
og/eða skólar geti valið sér samfélagsgreinar er dálítið óbundið val á
flestum brautum sem nýta má undir heimspeki eða hvað annað sem er.
Á flestum stúdentsprófsbrautum eru þetta milli 9 og 18 einingar.
Skólarnir fylla þetta svigrúm yfirleitt að hluta, og þá með öðrum
greinum en heimspeki, en láta nemendum gjama eftir svo sem eins og
6 einingar af alfrjálsu vali. Algengt mun að nemendur vinni þetta val
af sér með góðri skólasókn eða þátttöku í félagsstörfum.