Hugur - 01.01.1992, Page 107

Hugur - 01.01.1992, Page 107
HUGUR Ritdómur 105 kvaðst hafa selt allar stærðfræðibækur sínar eftir prófið og heitið því að hann myndi aldrei líta í stærðfræðibók framar. Russell gerði iðkun stærðfræði ekki að ævistarfi en samt stundaði hann merkar rannsóknir á mörkum stærðfræði og heimspeki á næstu árum. Þeim voru gerð skil í bókinni Ritgerð um undirstöður rúmfrœðinnar frá árinu 1896. Að mati Richards er bókin annars vegar svanasöngur hefðar lýsandi rúmfræði við háskólann í Cambridge og hins vegar heimspekileg úttekt á undirstöðum ofanvarpsrúmfræði sem ekki hafði verið sinnt til þessa. Það hirðuleysi, ef svo mætti kalla, er til vitnis um að heimssýn manna eins og Herschels og Whewells var að líða undir lok, en þeir höfðu talið að rökstyðja þyrfti undirstöður evklíðskrar rúmfræði og annarra vísindagreina á víðtækan hátt. Þess í stað var að birta af nýjum degi brotakenndrar og sérhæfðrar atvinnu- mennsku þar sem hagnýtur og tæknilegur árangur var oft og tíðum látinn duga til réttlætingar eða þá að heimspekilegrar undirstöðu var leitað innan greinanna sjálfra eða í sérhæfðum nágrannagreinum. Það næsta sem Russell gerði er gott dæmi um þetta. Hann sneri sér um aldamótin að rannsóknum á rökfræðilegum undirstöðum stærðfræðinnar ásamt Alfred North Whitehead. I eftirmála greinir Richards stuttlega frá þeim þáttaskilum sem urðu í sýn manna á rúmfræði á Englandi í byrjun þessarar aldar. Enskir stærðfræðingar hættu, líkt og starfsbræður þeirra á meginlandinu, að líta alfarið á rúmfræði sem þá fræðigrein er lýsti rúminu sem við lifum í, en fóru þess í stað að líta á hana formlega sem fræðilega heild er lyti einungis innri lögmálum. Hún byggðist á frumhugtökum og frumsetningum líkt og rúmfræði Evklíðs en laut þar að auki eigin lögmálum. I rauninni mátti líta á hana sem lýsingu á öllu því sem laut lögmálum hennar—jafnvel bara sjálfri sér samanber bók Davids Hilbert Undirstöður rúmfrœðinnar sem fyrst kom út árið 1899. Sífellt meiri rækt var lögð við hreinar rannsóknir á Englandi til eflingar fræðigreininni og þannig reynt að líkja eftir uppbyggingu rannnsóknarstarfs við þýska háskóla. Stærðfræðin hætti að vera eingöngu kennslugrein á háskólastigi þar sem gildi hennar væri fólgið í þeirri alhliða menntun sem hún veitti og menn fóru í staðinn að gera sér grein fyrir eigin gildi hennar sem fræðigreinar. Godfrey Harold Hardy, einn af helstu stærðfræðingum 20. aldarinnar á Englandi, gekkst undir tripos-prófið líkt og Russell en átti síðar þátt í því að það var lagt niður í hefðbundinni mynd þar sem það var orðið dragbítur á æskilega framþróun í stærðfræði. Hardy áleit að stærðfræðingar ættu að færa út landamæri stærðfræðilegrar þekkingar og ekki sinna almennum uppeldis- málum eða ljá hagnýtum rannsóknum lið. Þessi innhverfa lífssýn, byggð á nytleysi og sakleysi stærðfræðinnar, er rædd í þunglyndislegri bók Hardys Málsvörn stœrðfrœðings sem út kom í íslenskri þýðingu Reynis Axelssonar árið 1972. Ný ímynd stærðfræðinnar veitti enskum stærðfræðingum aukið athafnafrelsi og stuðlaði að þróttmiklum vexti greinarinnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.