Hugur - 01.01.1995, Page 56
54
Alan M. Turing
HUGUR
Þetta nota menn til að rökstyðja að við getum ekki verið vélar. Ég
ætla að reyna að endursegja þessi rök þó ég geti varla sýnt þeim fulla
sanngirni. Þau virðast vera eitthvað á þessa leið. „Ef sérhver maður
hefði safn af föstum hegðunarreglum sem hann hagaði lífi sínu eftir,
þá hefðu menn ekkert fram yfir vélar. En svona safn af reglum er ekki
til svo menn geta ekki verið vélar.“ Þessi rökfærsla er augljóslega
ekki gild og ég held að rökfærslan sé aldrei orðuð alveg svona. En ég
held samt að þessi rök séu notuð. Vera má þó að samsláttur
hugtakanna „hegðunarregla“ og „lögmál um hegðun" flæki þetta mál.
Með „hegðunarreglu" á ég við boð eins og „Stansaðu ef þú sérð rautt
ljós“ sem menn geta hagað sér eftir og verið meðvitaðir um. Með
„lögmáli um hegðun“ á ég hins vegar við náttúrulögmál um
mannslíkamann eins og „hann hljóðar ef þú klípur hann“. Ef við
látum „lögmál um hegðun sem stjórnaði lífi hans“ koma í staðinn
fyrir „safn af föstum hegðunarreglum sem hann hagaði lífi sínu eftir“ í
rökfærslunni sem vitnað var til þá er hugsanlegt að lappa upp á hana
þannig að hún verði gild, því við álítum ekki bara að hlutur sem
stjórnast af lögmálum um hegðun hljóti að vera einhvers konar vél
(þótt hann þurfi ekki endilega að vera stakræn vél), heldur að þetta
gildi líka í hina áttina og sérhver vél hljóti að stjórnast af slíkum
lögmálum. En þótt það megi sannfæra okkur um að við högum
okkur ekki að öllu leyti eftir hegðunarreglum þá er engan veginn jafn
auðvelt að sannfæra okkur um að hegðun okkar stjórnist ekki af
lögmálum. Við þekkjum enga leið til að fínna slík lögmál aðra en
vísindalegar athuganir, og okkur er ekki kunnugt um neinar
kringumstæður þar sem við getum sagt, „Nú höfum við leitað af
okkur allan grun. Það eru engin svona lögmál.“
Það er hægt að sýna fram á það með sterkari rökum að fullyrðingar
af þessu tagi séu óréttmætar. Ef við gætum alltaf fundið svona
lögmál hvar sem þau eru að verki og við hefðum fyrir okkur stakræna
vél, þá ættu athuganir að duga okkur til þess að afla nægilegrar
þekkingar á henni til þess að geta spáð fyrir um hegðun hennar í
framtíðinni. Og við ættum að geta lokið þessum athugunum innan
viðunandi tímamarka, til dæmis þúsund ára. En veruleikinn er ekki
svona. Ég hef sett upp lítið forrit á Manchestertölvunni. Það notar
aðeins 1000 geymslueiningar og lætur tölvuna taka við einni 16 stafa
tölu og skila annarri innan tveggja sekúndna. Ég er til í að skora á