Hugur - 01.01.1995, Page 94

Hugur - 01.01.1995, Page 94
92 Atli Harðarson HUGUR stærðfræðilegum hætti og orða aðferð til að herma eftir þeim ef slík lýsitig er gefin. Turingvél sem vinnur eftir þessari aðferð getur því hermt eftir öllum öðrum Turingvélum. Slík vél er kölluð altæk Turingvél (universal Turing machine). Turing gat sér þess til að altæk Turingvél geti reiknað öll reiknanleg föll. Með þessari tilgátu setti hann fram skilgreiningu á reiknanleika. Samkvæmt henni er reiknanlegt fall það sama og fall sem Turingvél getur reiknað. Turing gat ekki sannað að vélarnar sem hann smíðaði í huga sér gætu reiknað allt sem stærðfræðingar hafa fundið upp eða munu fínna upp aðferðir til að reikna. En hann gat sér þess til. Um svipað leyti settu Emil Post og Alonso Church, hvor í sínu lagi, fram skil- greiningar á reiknanleika sem síðar var sannað að væru jafngildar skilgreiningu Turing. Bæði af því að þessar skilgreiningar eru allar jafngildar og af því að engum hefur tekist að benda á fall sem menn gætu hugsanlega reiknað en fellur ekki undir þær má telja nær fullvíst að hér sé um að ræða réttar skilgreiningar á reiknanleika. Það má þá líka telja nær fullvíst að vélarnar sem Turing hugsaði sér, og vani er að kalla Turingvélar, geti reiknað allt sem hægt er að reikna. Sú tilgáta að skilgreiningar þeirra Church, Post og Turing fangi eðli reiknanleikans, þannig að undir þær falli öll reiknanleg föll, er kölluð tilgáta Church og Turing. Ég geng að því sem vísu að hún sé sönn. Tölvur geta gert allt sem altæk Turingvél getur svo það er hægt að láta tölvur framkvæma alla mögulega útreikninga.7 Hvernig tengist þetta mannlegum vitsmunum? Vél sem getur unnið eftir hvaða reikniaðferð sem er getur ef til vill slegið fólki við í reikningi - en fólk getur gert svo ótal margt annað en að reikna. Er nokkur ástæða til að ætla að hægt sé að fá tölvur til að herma eftir annars konar hugarstarfí en því sem byggist á einhvers konar útreikningum? Hér þurfum við að huga að því hvað átt er við með tali um reiknanleg föll. Fall tekur við táknum, þ.e. tölum, stöfum, orðum, merkjum eða munstrum af einhverju tagi og skilar táknum þannig að 7 Hér þarf að bæta við einum fyrirvara. Turing hugsaði sér að vélamar sínar hefðu óendanlega langan tíma og óendanlega mikið pláss fyrir útreikninga á pappírsstrimlinum. Hngin tölva endist endalaust og engin tölva hefur óendanlega stórt vinnsluminni. Það er því sama hvaða tölvu er bent á, ef við vitum endingartíma hennar og vinnslurými þá getum við fundið reikningsdæmi sem hún ræður ekki við.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.