Búnaðarrit - 01.08.1922, Page 86
82
BÚNAÐARftlT
Þá ber fyrst að nefna eitt af aöal-verkum garðyrbj-
unnar, þar sem oft er brotið mjög í bága við allar regl-
ur um vandvirkni, og það er uppstungan. Fáir
gera sjer víst grein fyrir, hve mikið er undir því komið
að rjett sje stungið upp. Að „stinga upp garð" er verk,
sem flestir þykjast kunna, en þó er fjarri því að svo sje.
Upp-itungan er taisvert vandamikið verk, og er stór-
mikið undir því komið að það sje rjett gert.
Eftir því, sem mjer heflr sýnst, eru flestir fram úr
hófl skeytingarlausir við upp^tungu hjer á landi; og er
það þvi soiglegra, þar sem það er að miklu leyti undir
uppstungunni komið, hvernig uppskeran verður. Það er
oft aumt að sjá, hvernig garðar eiu stungnir upp hjer-
leudis. Viða eru ellihiumir menn og konur, eða ung-
lingar, sem naumast valda rekunni, látnir við það fást.
Svo er moldinni velt til i stórum kögglum, án þess að
hún sje mulin, sem þó er aðal-tilgangui inn með upp-
stuneunni. Uppstungan er all-erfitt verk, og þarf bæði
verklægni og nákvæmni, ef það á að leysast vel af
hendi. Uppstungan er þýðingarmikið atriði í allri garð-
rækt, og er ekki hægt að vinna moldina betur á annan
hátt. Ef vel er stungið upp, flýtir það mjög fyrir rótar-
myndun plnntna, rótarnetið verður greinóttara og full-
komnara og á þá mun ljett.ara með að hagnýta sjer
þau næringarefni, sem í jaiðveginum eru. Enn fremur
vex rótin fljótar niður á við, ef moldin er finmulin, og
hefir það mikla þýðingu, ef þurkasamt er. Emnig hitnar
moldin fljótar, ef hún er laus í sjer, þá veiða efnabreyt-
ingar örari, og er það ekki þýðingarminsta atriðið.
Til þess að hægt sje að stinga vel upp, er nauðsyn-
legt að hafa góð verkfæri, og er rekan hesta áhaldið til
þess. En þar sem gaiðar eru í góðri rækt, og moldin
laus í sjer, má einnig nota stungukvíslar, og er það
fult eins Ijett. Hentugastar eru fertentar kvíslar. Sje
notuð reka, er nauðsynlegt að hún eje steik og Ijett,
og blaðið vel sljett, svo að moldin ekki festist við til