Dvöl - 01.10.1941, Blaðsíða 86
Ilollt es lieiiiia livaí
Gamalt máltæki segir: „Hollt es heima
hvat“. Yngra máltæki hljóöar svo: „Sjálfs
er höndin hollust". Á öllum tímum hafa
menn skynjað þaö, að bezt er að búa
sem mest að sínu. Það á jafnt við um
fæði sem klæði og lífsþurftir allar. Og
þessi máltæki eru jafn sönn og ráðholl,
hvort sem litið er á fjárhagshliðina eða
fyrst og fremst hugsað um heilbrigði og
vellíöan fólks. Þetta eru boðorð, sem hvar-
vetna eru í góðu gildi, en sérstaklega er
þó svo smárri og fátækri þjóð sem ís-
lendingum nauðsynlegt að halda þau vel
og dyggilega.
Bezta fæðutegundin, sem völ er á, er
mjólkin. Svo er heilbrigði fólks bezt
borgið, að það hafi jafnan gnægð góðrar
mjólkur til daglegrar neyzlu. Og hún er
heimafengin fæða á íslandi. íslenzka
þjóðin ætti að vera þess minnug, hvers
virði mjólkin er. Prá öndverðu hefir hinn
hvíti drykkur verið lífdrykkur þjóðarinn-
ar. Það er mjólkin, sem fyrst og fremst
hefir firrt þá heilbrigðu sjúkdómum og
gefið sjúkum og vesölum nýjan lífsþrótt.
í hinum mestu harðærum hélt mjólkur-
dropinn lífinu í fólkinu, meðan hans var
völ. Þegar hann þraut, veiktist það og
féll unnvörpum.
Að fornu og nýju, að áliti fræðimanna
og alþýðu, hefir mjólkin verið fólkinu
bezti lífgjafinn. Fornum spekingum duld-
ist ekki máttur mjólkurinnar. Um það
vitnar meðal annars sagan um Auðumlu,
kúna, er fæddi Ými jötun með fjórum
mjólkurám, er runnu úr spenum hennar.
Ekki voru hugmyndir formanna um Ými
jötun slíkar, að honum hafi dugað neitt
léttmeti sér til munns að leggja. En þeir
vissu ekki aðra kjarnbetri fæðu en mjólk-
ina, og þeir höfðu satt að mæla.
Vísindamenn nútímans gerbekkja eðlis-
kosti mjólkurinnar: Að hún er næringar-
ríkasta fæðan, sem fáanleg er, og sú ó-
dýrasta miðað við næringargildi. Frægum
lækni, dr. med. A. Tanberg, fórust svo
orð, er hann lýsti mjólkinni frá sjónar-
miði vísindamannsins og heilsufræðings-
ins:
„Mjólk er fullkomnasta næringarbland-
an, sem til er. Engin önnur fæðutegund
kemst í hálfkvisti við hana. Sé mataræð-
inu áfátt, er engin önnur fæðutegund jafn
vel fallin til þess að bæta úr slíkum á-
göilum sem mjólkin. í raun og veru gerir
nóg mjólk mataræðlð fullkomið.
Mjólkurfitan, smjör og rjómi, er auð-
meltasta og bragðbezta fitan, sem völ er á,
og þar að auki hefir hún inni að halda
mikið af A og D fjörefnum.
Steinefni og sölt mjólkurinnar eru mjög
haganlega blönduð innbyrðis. í henni er
mikið af kalki, en nú á dögum er fæðan
oft kalklítil og það svo, að börnum og
unglingum er tíðum hætta af því búin.
Margháttaðar vísindarannsóknir hafa
leitt ótvírætt i ljós, hve mikil og góð á-
hrif mjólkin hefir á andlegan og líkam-
legan þroska skólabarna. Börn, sem fengið
hafa % lítra mjólkur á dag, hafa tekið
mun meiri framförum og verið ónæmari
fyrir sjúkdómum en böm, sem fengu
sams konar íæði án mjólkur.
Það getur ekki leikið á tveim tungum,
að rétt notkun mjólkur og mjólkurafurða
í daglegt fæði, er bezta ráðið til þess að
auka hreysti og heilbrigði þjóðarinnar".
Annar norrænn heilsufræðingur, víð-
kunnur maður, hefir sagt:
"Mjólkin er hollust, ef hún er drukkin
ný og ómenguð. En þær afurðir, sem bún-
ar eru til úr mjólk, eru einnig hin ágæt-
asta fæða.
Ostur er búinn til úr eggjahvítuefni
mjólkurinnar, sem mjög er auðugt að
brennisteinssýru. Eggjahvítuefni mjólkur-
innar er þmngið þeim frumefnum, sem
jurtafæða okkar er mjög snauð að, eink-
um brauðmeti. Það er ákaflega áríðandi,
að fólki sé bætt slík vöntun í fæðinu.
Feiti mjólkurinnar, smjör og rjómi, er
auðmeltasta og lostætasta feitin, sem
kostur er á. Hún hefir í sér falin A og
D fjörefni, sem öllum eru bráðnauðsyn-
leg, sérstaklega þó börnum.“