Dvöl - 01.01.1948, Page 21

Dvöl - 01.01.1948, Page 21
DVÖL 19 ---------------------------------------------•.................................N, Dvöl birtir nú sögu eftir þann höfund, er hlaut bókmenntaverðlaun Nobels árið 1946, en það er þýzk-svissneski rithöfundurinn Hermann Hesse. Hann er fæddur 2. júli 1877 í Wittemberg í Þýzkalandi, en var þó ekki af þýzku foreldri. Porsjármenn Hesse vi!du gera úr honum borgaralegan embættismann — helzt prest, en hann tók því fjarri og lagði fyrst stund á vélfræðinám, en hvarf síðan frá því og gerðist bóksali í Basel og Thúringen. Hann hneigðist þó snemma að' 1 bókmenntaiðkunum og las mjög mikið framan af árum. Árið 1912 fluttist hann til Sviss og hefur búið þar síðan. Hesse er nú sjötugur að aldri og býr einn sér við' Boden-vatn. Hesse hefur löngum verið' fylgjandi hinni svokölluð'u aðhneigingar- kenningu. Hann álítur, að það sé raunar ekki svo mikill munur á skoð'unum manna í heimin- um. þrátt fyrir stríðandi stefn- ur. Þegar dægurfroðan er blás- in af og aldir renna, eru hinir andstæðu oft staddir við einn og sama brunn, og menn eru oftast að leita að sömu lífs- sannindum, hvort sem þau eru sótt i sjóð Lao Tse, Sókratesar, Buddha eða Krists. En maður- inn á ekki að elta ytri lífsgæði, aðeins keppa að því að eignast hreinan og vakandi hug, prútt hjarta, þolgæöi og vit, því að Hermann Hesse. Þá getUr hann lifaö jafnt við hamingju og harm, stríð og frið. Og Hesse segir: „í ljósi þessa lifsvið'horfs þurrkast öll landamæri út og allar hömlur falla milli kynflokka og þjóða, ríkra og fátækra, stefna og flokka. Hver blettur jarðarinnar verður heimili vort, og hver maður jafningi vor og bróðir." Þetta er hans lífsskoðun, og hann hefur túlkað hana i verkum sínum aí skáldlegu innsæi og ljóðrænni formfegurð'. Fyrsta bók Hesse, Romantische Lieder, kom út árið 1898, en þó náð'i hann ekki viðurkenningu sem gildur rithöfundur fyrr en með skáldsögunni Peter Gamenzind, sem kom út árið 1904. í þeirri bók hefur höfundurinn sjálfan sig í huga að verulegu leyti og fjallar þar um erfiðleika ung’ings í umsjá þröng- sýnna i'orsjármanna. Síð'ar hefur Hesse ritað nokkrar skáldsögur og allmargar smásögur, sem flestar eru dulræð’ar og ljóðrænar. Hann hefur einnig ort ljóð, og hefur Magnús Ásgeirsson þýtt eftir hann a. m. k. eitt kvæði.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.