Dvöl - 01.01.1948, Blaðsíða 62

Dvöl - 01.01.1948, Blaðsíða 62
60 DVÖL inga getur veriS varhugaverS stiltækni, enda þótt ég sé því ekki fylgjandi, sem ég las einhvers staðar ekki alls fyrir löngu, að „engin þjóð i veraldarsögunni hefði orðið að stórveldi, sem notað hefði ákveðinn greini í máli sínu.“ En að ýmsu má of mikið gera. Þess verður þó að gæta, að Jón Björnsson er svo að segja nýbyrjaður að skrifa á móðurmáli sínu, og þessa bók hefur hann frumsamið á dönsku. í Danmörku fékk hún hina beztu dóma og seldist vel. Höf. er talinn hafa náð miklu valdi á danskri tungu, og fyrir mörgum árum orðinn víðlesinn ytra, endaþótt hér heima þykist fáir við hann kannast. Krókalda. — Skáldsaga eftir Vil- hjálm S. Vilhjálmsson. Helgafell. Reykjavík 1947. Krókalda. — Síðastliðið haust sendi Vilhj. S. Vi’hjálmsson frá sér annað bind- ið af alþýðusögu sinni, sem strax vakti athygli, er hún kom fyrst á markaðinn fyrir röskum tveim árum. Menn hafa beðið þéssarar bókar og menn bíða fram- haldsins. Það þarf ekki að kynna Vilhjálm, og það þarf varla að kynna söguna heldur. Hins er vert að geta, að þeim vonum, sem höf. gaf með fyrstu bókinni hefur hann ekki brugðizt með þeirri næstu. Krókalda getur hæglega staðið ein sér sem sjálfstæður róman, hins vegar er hún auðséð framhaid af Brímar við Böl- ldett, sögupersónurnar halda áfram að lifa þar, en aðrar og nýjar koma einnig við sögu. Athyglisverðast við bókina er samt það, að frásagnarháttur þessa bind- is er hnitmiðaður á köflum, en það var hann varla í fyrsta bindinu. Þarna ber miklu minna á journalistanum, melra á rithöfundinum, skáldinu. Upphaf bók- arinnar fannst mér ekki taka hug minn óskiptan eins og þeirrar fyrri, hins vegar eru í þessari bók lýsingar og atvik, sem maður gleymir ekki, og allt sem V. S. V. skrifar er gætt sama lifinu, sömu frá- sagnargerðinni, mannþekkingunni, svo maður hefir hann stundum grun- aðan um að segja ekki allt sem hann veit. Ég er ekki í neinum vafa um það, að hann getur skrifað miklu lengra mál en hann gerir í þessum bókum um sama efnið, dvalizt lengur við smáatriði, jafn- vel á stöku stað orðið fyllri og skorin- orðari, þar sem hann er einmitt sterk- astur og þarf ekki að óttast neina van- getu. Mér kemur til hugar náttúrulýs- ingar, lýsingar á briminu við suðurströnd- ina, — svo ég nefni dæmi; — ég held, að V. S. V. gæti skrifað heilan innskots- kafla um ekkert annað en brim, — og kaflinn orðið listaverk, ef höf. væri í essinu sínu. Á hinn bóginn ber að virða það, þegar menn frekar takmarka það sem þelr segja, heldur en breiða úr því um of. Ég les varla andstyggilegri bækur en þær, sem höfundar reyna að teygja og teygja, spinna og vefja utan um svo sem ekkert — nema stíltæknin sé þá á háu stigi, helzt geysiháu. Með því einu móti er slíkt afsakanlegt. Hins vegar trúi ég, að höfundur Krók- öldu þurfi ekki að óttast. Næstu bókar hans er beðið með eftirvæntingu. Hann hefur þegar unnið sér traust. Hann hef- ur rausnarlega af stað farið með efni úr lífi þjóðarinnar, og hann kann að fara með það. Ég vil að lokum geta þess, að útgáfa beggja þessara bóka er hin smekklegasta, og hefðu þó prentvillur í fyrrnefndu bók- inni mátt vera drjúgum færri. Reykjavík, 19. febr. 1948 Ellas Mar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.