Dvöl - 01.01.1948, Blaðsíða 37

Dvöl - 01.01.1948, Blaðsíða 37
DVÖL 35 verið gefin um að hreinsa pípuna, er hún stíflaðist, hafði hún misst kjarkinn og gert það ófyrirgefan- lega glappaskot að hlaupa burt í hræðslu. feegar ég kom inn í sjúkrastofuna, var drengurinn þegar dáinn, og allar lífgunartil- raunir reyndust árangurslausar. Hugsunin um þessi miklu mistök fékk mjög á mig, og þar að auki fannst mér það óbærilegt, að árangurinn af uppskurðinum, er ég hafði gert af mikilli vandvirkni, skyldi gerður að engu með ófyrir- gefanlegu fljótræði. Reiði min átti sér engin takmörk. Auðvitað varð ég að losa mig við afbrotamann- inn. Ég varð að skrifa kæru til við- komandi heilbrigðisyfirvalda, svo að stúlkunni yrði vikið frá starfi sinu, og þeirri köllun, er hún hafði ætlað að gegna í lífinu. Um kvöldið deif ég penna mín- 'um í blek og skrifaði kæru á hendur henni, og hlaut sú kæra að leiða til brottreksturs. Síðan kallaði ég á stúlkuna og las kær- una fyrir henni með heilagri vandlætingu. Hún hlustaði á mig án þess að mæla orð frá vörum. Hún var bóndadóttir frá Wales, 19 ára göm- ul, stirðleg í hreyfingum og feimn- isleg á svip. Hún virtist blóðlítil og vannærð og komin að því að falla í yfirlið af skömm og örvæntingu. En hún gerði enga minnstu til- raun til þess að afsaka breytni sína. Hún hefði þó getað sagt, að hún hefði verið úrvinda af þreytu, því að það var satt. Þetta gerði mig enn reiðari, og ég hreytti út úr mér: — Hafið þér enga afsökun fram að bera, eða hvað? Hún hristi höfuðið og sagði ekk- ert, en eftir nokkra stund stamaði hún: — Lofið mér að reyna aftur, Þetta hafði mér alls ekki dottið í hug, aö hún mundi segja. Eina hugsuzr .mín hafði verið sú, að láta hana játa yfirsjón sína og iðrast hennar. Ég horfði þegjandi á hana, en svo skrifaði ég undir kæruna og innsiglaði bréfið. En alla nóttina sóttu þessi orð að mér: — Lofið mér að reyna aft- ur. Þetta bergmálaöi sífellt í huga mínum, hvíslaði að mér, að rétt- vísi mín, og þar með öll mannleg réttvísi, væri ekki annað en frum- stæð hefnigirni Ég var sjálfum mér reiður og reyndi að telja mér trú um, að það væri ég sjálfur, sem væri fífl. En um morguninn reif ég á- kærubréf mitt í tætlur. Þetta skeði fyrir tuttugu árum síðan. Nú er hjúkrunarneminn, sem gerði sig sekan um þetta af- brot, forstöðukona fyrir stærsta barnaheimilinu í Wales. Hún hefir algerlega helgað sig köllun sinni og gengið að starfi sínu með undra- verðu þreki og skyldurækni. Það er ekki langt síðan ég sá í þlað(i einu mynd af miðaldra konu í hjúkrunarkonubúningi. Hún var umkringd börnum í loftvarnabyrgi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.