Dvöl - 01.01.1948, Page 44
42
garðshliðinu. Og á sumrin, er
hann vildi uppfylla eiginmanns-
skyldur sínar gagnvart konu sinni,
var hann vanur að fara inn i
garðinn með hana, og þangað
kom enginn annar en þau tvö ein.
Á þennan hátt lifðu þau Janúar
og kona hans saman marga yndis-
stund. En jarðnesk hamingja varir
ekki að eilífu, og það sannaðist
hér. Janúar varð allt í einu blindur
mitt í fögnuði lífs síns, og hann
var að dauða kominn af sorg
vegna þessa mótlætis. Hann grét
og barmaði sér yfir þessari óham-
mgju, og við þessar hörmungar
bættist svo það, að hann varð nú
gripinn brennandi afbrýðisemi.
Hann gat ekki hugsað til þess, að
Mai lét.i nokkrum cíðrum blíðu
sína í té, hvorki að sér liíandi né
dauðum. Hann vildi, að hún lifði
sem ekkja og klæddist svörtum
klæðum eftir sinn dag. lifði alein
eins og turtildúfan, sem hefur
misst maka sinn.
En er tíminn leið, stilltist sorg
hans. Þegar hann sá, að þessu
varð ekki breytt, sætti hann sig
við örlög sín. Hann gat þó ekki
haft hemil á afbrýðiseminni, og
það gekk svo langt, að hann gætti
þess vandlega, að Mai hreyfði sig
ekki eitt einasta fet hvorki innan
húss né utan, án þess að hann
hefði sjálfur höndina á öxl henn-
ar. — Þetta varð Mai þungbært,
og hún grét oft yfir því, því að
hún elskaði Damian svo ákaft, að
DVÖL
hún varð annað hvort að fá að
njóta hans eða deyja að öðrum
kosti, og hún bjóst við, að hjarta
sitt mundi springa af ást þá og
þegar.
Og Damian varð sorgmæddur
maður, því að honum gafst ekki
tækifæri til þess að segja eitt ein-
asta orð við Mai, hvorki á nóttu
eða degi, án þess að Janúar væri
viðstaddur. Þau gátu aðeins orðið
áskynja um hug hvors annars með
bréíaskriftum.
Mai hafði þó mótað silfurlykil-
inn að garðshliðinu í vax og
Damian hafði látið gera lykil eftir
mótinu með mikilli leynd og gat
nú komizt inn í garðinn. Morgun
einn síðla í júní greip Janúar
löngun til þess að fara út í garð-
inn ásamt konu sinni einni, og
hann sagði við hana: — Rístu
upp, kona; komdu yndislegi engill-
inn minn. Heyrirðu ekki lævirkja-
sönginn. Veturinn er liðinn, og
vorið er að heilsa. Umhverfis garð-
inn er hár múr. Við skulum fara
þangað og njóta lífsins. Slík orð
lét hann sér um munn fara.
Mai gaf Damian merki um að
hann skyldi fara á undan þeim
inn í garðinn. Damian opnaði hlið-
ið með lykli sínum og flýtti sér
inn í garðinn, án þess að nokkur
yrði var um feröir hans. Síðan
faldi hann sig undir runna.
Síðan gekk Janúar með konu
sína við hlið út í hinn fagra og
frjósama garð, og hliðið lokaðist