Dvöl - 01.04.1948, Page 18

Dvöl - 01.04.1948, Page 18
80 að ég eigi það upp á mig. Ég býst við, að ég eigi vel inni fyrir því, sem ég fæ.“ „Hvað færðu?“ sagði Koddý. „Hverju áttu inni fyrir?“ „Engu,“ sagði pabbi. „Þið eigið að fara að hátta.“ „Kaddý fór með mig hingað,“ sagði Jason. „Farðu til Rakelar frænku,“ sagði pabbi. „Það er ekki til neins,“ sagði Nanna. Hún sat framan við eldinn með olnbogana á hnjánum, löngu hendurnar milli hnjánna. „Jafn- vel ykkar eldhús stendur ekki fyr- ir honum. Jafnvel þó að ég svæfi inni hjá börnunum þínum, því að svo kemur morguninn og þar ligg ég í blóði —•“ „Uss,“ sagði pabbi. „Læstu hurð- inni og slökktu og farðu í rúmið.“ „Ég er myrkfælin," sagði Nanna. „Ég er hrædd við að láta það ske í myrkri.“ „Ætlarðu virkilega að sitja hér og láta loga?“ sagði pabbi. Þá fór Nanna að hljóða aftur, í sæti sínu framan við eldinn með löngu hendurnar milli hnjánna. „Fjand- inn hirði það,“ sagði pabbi. „Kom- ið þið, krakkar. Það er komið langt fram yfir háttatíma." „Um leið og þið farlð heim, er ég búin að vera.“ Nú talaði hún stillilegar og andlitið var stillt og hendurnar. „Allt um það, ég á að minnsta kosti inni fyrir kistunni hjá herra Lovelody. Herra Love- D VÖL lody var stuttur og sóðalegur, hann innheimti líftryggingargjöld hjá negrunum og leit inn í kofana eða eldhúsin á laugardagsmorgnum til að krefja um 15 sent. Hann bjó með konu sinni á hótelinu. Einn morguninn fyrirfór konan sér. Þau áttu barn, ofurlitla stúlku. Hann hvarf á burt með barnið. Eftir vikutíma eða svo kom hann aftur einsamall. Við sáum hann aftur á rjátli um stígana og útstrætin á laugardagsmorgnum. „Hvaða vitleysa,“ sagði pabbi. „Það fyrsta, sem birtist mér í eld- húsinu á morgun, verður þú. „Eitthvaö birtist þér, býst ég við,“ sagði Nanna. „En Drottinn einn má vita, hvað það verður.“ VI. Hún sat viö eldinn, þegar viö fórum. „Komdu og settu brandinn fyrir,“ sagöi pabbi. En hún bærði ekki á sér. Hún leit ekki á okkur framar, en sat kyrrlát milli eldsins og lampans. Alllangt neðan af veg- inum sáum við í hana inn um opn- ar dyrnar. „Heyrðu pabbi,“ sagði Kaddý. „Hvað skeður?“ „Ekkert,“ sagði pabbi. Pabbi bar Jason á bakinu, svo að Jason gnæfði yfir alla. Við fórum niður í skuröinn. Ég skimaðist um, gæti- lega. Ég sá ekki mikið, þar sem tunglsljósið og skuggarnir runnu saman.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.