Dvöl - 01.04.1948, Page 33

Dvöl - 01.04.1948, Page 33
D VÖL 95 inni í sál hans vottar eigi að síð- ur fyrir ama. Hún hefur ekki þann hugblæ, sem honum finnst við eiga. Honum er þessi stund heilög. En hvað var það annars, sem hann ætlaði að segja við hana? Henni er forvitni á því. Hann verður að stynja þvi upp. Hann ætlaði að biðja hana að fara ekki á dansleikinn í kvöld. Hann ætlaði bara að biðja hana að vera einhvers staðar með honum. Án hennar er hann svo hræðilega einmana. En hún hlær bara að bón hans. Hann hlýtur þó að vita það sjálf- ur, að þau eiga ekkert athvarf. Hvar ættu þau svo sem að vera? Finnst honum eðlilegt, að hún geti unað hér í þessum hesthúskofa í allt kvöld? Hann verður að svara því neit- andi, þó að sjálfur hefði hann helzt kosið það. Sannarlega gæti hann unað hér í allt kvöld. Jæja, getur hann bent á nokk- ur úrræði? Hefur hann upp á nokk- uð að bjóða. Hann hlýtur þó að vita hvernig veðrið er. Ekki geta þau verið úti. Nei, hann kveöst sjá, að þau geta ekki verið úti. — En Bogga mín, elsku Bogga mín, segir hann, mér leiðist svo að þú skulir dansa. Dansinn er ó- heppileg skemmtun fyrir unglinga. — Segir mamma það? spyr hún hlæjandi. En þessi spurning snert- ir hann illa. Hún er móðgun við seytján ára mann. Hann svarar þóttalega, eins og þegar menn svara fjarstæðu: — Mamma! — Nei, Nonni minn, ég var bara að stríða þér, segir hún og hjúfrar sig fastar að honum. En hún hefur nú með þessari ó- þægilegu spurningu hrundið hon- um út af vegi þeirrar einlægni, sem hann hafði ætlað að mæta henni á. Hann á erfitt með að halda þræðinum áfram. En senni- lega hefur Bogga ekki hugmynd um, hve nærri sannleikanum hún spurði, svo hann heldur áfram: — Það er kannske kjánalegt, en ég segi það eins og er, allir laugar- dagar eru orðnir mér kvalræði, síð- an þið tókuð upp á því að dansa öll laugardagskvöld. Þú ferð líka alltaf þangað, Bogga. Þú ferð alltaf. — Já, mér þykir svo gaman að dansa, Nonni, ég sé ekkert ljótt við það. Hún segir þetta hlæjandi, frá hennar hlið séð er þetta ekki al- varlegra en svo. — Þér þykir það gaman, já, þú segir það víst alveg satt. En vegna hvers þykir þér það gaman? — Vegna hvers? Ja, ég veit það ekki, það er af svo mörgu. Mér þykir t. d. gaman að vera í hópi ungs fólks, sem er samtaka í að skemmta sér. — Bogga, þér þykir það gaman, vegna þess að þér þykir gott, að strákarnir haldi utan um þig.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.