Dvöl - 01.04.1948, Page 49
Hamingian
Eftir Coru Sandel
I.
Frá því hún var lítil var það, sem
hún fékk, alltaí' minna en það,
sem hún hafði óskað eftir .... svo
miklu minna, að hún fyrirleit þetta
litla, sem henni hlotnaðist. Enginn
lifir svo, að honum falli ekki eitt
og annað i skaut, ekki hún heldur.
Gallinn var bara sá, að þegar hún
fékk fimmeyring hafði hana
dreymt um krónu minnst, og þeg-
ar mamma hennar saumaði upp á
hana gamlan kjól af sjálfri sér,
hafði hún, því miður, fyrir löngu
síðan tekið eftir silkikjól í glugga
álnavörukaupmannsins. En henni
lærðist að þegja yfir slíku. Hún var
meðal hinna yngstu í stórum syst-
kinahópi, og hennar heimtufreka
sál átti bústað í óásjálegum lík-
ama. Engum kom til hugar að
halda henni til.
Hún óx, og þráði sífellt meira og
meira. Hún þráði að klæðast fall-
egum fötum, vera sjálf falleg, ferð-
ast, og allt hlotnaðist henni í sama
hlutfalli og fimmeyringurinn og
krónan. Þegar hún var fermd,
fékk hún nýja kjóla, sem mamma
hennar og Lína saumakona saum-
uðu með vandvirkni og umhyggju-
semi. Hún kunni illa við sig í þeim.
Hárið á henni var sett upp, og
mamma hennar, og allar frænk-
m-nar, lýstu því yfir, að hún væri
virkilega sæt ung stúlka. Þær tos-
uðu henni fram fyrir spegilinn og
sneru henni þar í ótal hringi. Hún
gekk frá þeim og grét beisklega.
Eftir ferminguna fékk hún að
heimsækja ömmu sína í Grímsbæ.
Hún lét enga gleði í ljós yfir ferða-
laginu, og úr öllum áttum kvað
við, að hún væri leiðindapersóna.
Hvert sinn sem aðrir glöddust,
óx henni ný sorg og ný, beiskju
blandin þrá. Umferðaleikflokkur
kom til bæjarins. Fjölskyldan kom
stórhrifin heim af einu leiksýn-
ingunni, sem hún hafði efni á að
sækja. Sjálf kom hún heim, yfir-
komin af leiða og nagandi löngun,
ekki til að vera við allar sýning-
arnar og margar fleiri, heldur til
að leika sjálf. Svona einföld gat
hún verið. Langan tíma eftir þetta
gistu leikararnir hana í draum-
förum hennar, og hún varð barma-
full af óbeit á öllu og öllum. Hún
gekk oft fyrir spegilinn, þegar hún
var ein. Hún gekk frá honum lút-
andi höfði, með kökk í hálsinum.