Dvöl - 01.04.1948, Síða 55

Dvöl - 01.04.1948, Síða 55
DVÖL Á heimleiðinni var rætt um það, sem gerzt hafði. Hugsa sér, sagði Hónóríá frænka, að þú skyldir líka dansa við liðs- foringjann. Hvað það var elsku- legt af honum. Það er sagt, að hann sé reglulegur Don Júan, en í rauninni er hann víst virkilega fín persóna. En hvað hann hefur gott og vingjarnlegt andlit, hugs- aði ég á meðan ég horfði á ykkur dansa. Og í ákafa sínum að sætta allt og alla sagði Bolla frænka: Ja, hugsa sér, hann sá víst, að þú dansaðir ekki svo mikið, ég verð að segja, að ég er hrærð yfir kurt- eisi hans. Tea frænka sagði ekkert, Karl Lúðvík ekki heldur. Sjálf ýtti hún tungubroddinum út milli tannanna og svaraði engu, en allt í einu tók hún um arminn á Karli Lúðvík. Upplausnin í and- liti hans skömmu áður stóð henni svo greinilega fyrir hugskotssjón- um. Er þau voru orðin ein, hóf hann máls, og nú var engin upplausn í andliti hans. Hann spurði hana, hvers vegna hún hefði lokað aug- unum, hvers konar skrípalæti það eiginlega væru. Er hún svaraði engu, talaði hann um uppgerðarlæti, smekk- leysi og stöðu sína í bænum. Slíkt og þvílíkt gerir maður ekki, sagði Karl Lúðvík. Vökin, sem hún fann opnast í 117 sál sinni, er þau héldu heimleiðis, fraus aftur saman. II. Liðsforinginn fór burt og kom ekki aftur. Það gerði ekkert til. Hann gat ekki gert neitt betra. Hann hafði skyndilega staðið hér, óvæntur og óhjákvæmilegur eins og örlögin, lagt arminn utan um hana og leitt hana frá gráum hversdagsleikanum yfir veraldir, þar sem þyngdarlögmálið var ó- gilt .... og með örlítilli armhreyf- ingu hafði hann sett hana aftur á sinn stað. Eftir það var hún önn- ur manneskja. Það var ekkert dul- arfullt við það, og það gaf honum rétt til að leika stórt hlutverk í lífi hennar. Gallinn var sá, að hann fór ekki vel í því. Örlögin eiga ekki að hafa ávalan baksvip, alltof aðskornar buxur eða ein- glyrni. Þau gátu ekki heldur dansað ævilangt. Lífinu er nú þannig farið, að það er óumflýjanlegt að horfa einnig hver á annan úr fjarska, og þessi hugsun féll henni illa. Þar að auki var hún ekki svo heimsk, að henni dyldist, að liðs- foringinn myndi hafa orðið þreytt- ur á henni. Þegar músíkin hætti, myndi hann ekki lengur vita, hvað hann ætti við hana að gera. Það var nú einu sinni þannig, að allt, sem henni viðkom, skyldi smánað og niðurlægt. Töframaðurinn var spaugileg persóna. Og sjálf var

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.