Hlín - 01.01.1960, Blaðsíða 14
Skátamessa á sumardaginn fyrsta 1960.
Niðurlagsorð prjedikunar
Sigurbjörns biskups Einarssonar.
..... Heimsfrægt skáld var að ræða við vin sinn úti
í garði um vandamál lífsins, og skáldið nam staðar, benti
á fallegt blóm við fætur sjer og sagði: „Það, sem sólin er
þessu blómi, þaðer Jesús Kristur mjer.“
Þegar Jesús Kristur kom og gaf okkur jólin og páskana-
gaf okkur líf sitt og eftirdæmi, orð sín og anda sinn,
varð vor á þessari jörð. — Það vor hefur farið með lífg-
andi þey um löndin og vakið það besta og fegursta, sem
heimurinn á. — Vetraröflin hafa staðið gegn því og viljað
buga það, vetraröflin í samtíðinni leggjast þungt gegn
því, skuggarnir í fiuga þínum vilja flýja það, en vorþráin
í sálu þinni, öll góðu fræin, sem blunda þar, stefna til
móts við það vor, eins og brumið og blómhnappurinn
sveigir sig móti geislanum, dreymir um sumarið og bless-
ar það.
Og ísland, sem elskar lílið sitt, biður, biður nú eins og
það hefur aldrei beðið áður um nokkurn hlut. — Ekki um
frelsi sitt, ekki um skóga sína aftur. — Það biður nú um
ungt fólk, sem sje sannir vormenn, menn Jesú Krists, með
sumarið hans í sál, J^ann ilm í huga, þann yl í hjarta, þá
heilsu í samvisku sinni, þann vekjandi, lífgandi, heil-
næma andvara í fasi og breytni, sem hann einn getur gef-
ið, og sem hann gef'ur hverjum þeim, sem leitar lians.
Þetta er bæn landsins þíns, ungi vinur, kveðja vorsins,
köllun Drottins þíns. Þetta, að líf þitt verði gleðilegt
sumar í Jesú nafni.“