Hlín - 01.01.1960, Blaðsíða 122
120
Hlin
\k
arferð? spurðu konurnar. — Svarið var jákvætt.
Á hverju þingi er skrifleg, alþjóða kepni um tiltekið
efni. — Hvert land má senda þrjú svör, þýdd á ensku. —
Síðasta spurningin var:
„Hvað sagði hún amma mín mjer?“
Noregur fjekk mikið hrós fyrir sitt svar.
Formaðurinn, frú Berry, sem kosinn var í Toronto fyr-
ir 6 árum síðan, ljet þau orð falla, meðal annars, og taldi
þau gjarna mega vera einkunnarorð þessa fjelagsskapar:
„Ef þú vilt koma einliverju í farmkvæmd, þá gerðu það
sjálf!“
Fallega, hvíthærða konan, þingmaðurinn frá Indlandi,
sagði:
„Það, sem rnjer ])ót.ti mest um vert á þessu þingi, var
brosið góða, sem alstaðar mætti mjer, jjað sýnir að við
erum vinir, viljum reyna að skilja hver aðra og hjálpast
að.“
Áhrif fjölskyldulífsins.
Eitt af vandamálum nútímans eru glæpir unglinga. —
Nýlega var gerð rannsókn meðal æskumanna af kínversk-
um ættum í New York og San Francisco, en í jiessum
borgum eru Kínverjar fjölmennir. Rannsóknin leiddi í
Ijós, að meðal þeirra ])úsunda kínverskra æskumanna,
sem hjer um ræðir, fanst ekki einn einasti, sem framið
hefði afbrot, eða komist í ónáð við verði laoanna. — Þeir
höfðu ekki stolið, ekki notað eiturlyf eða selt þau, ekki
framið innbrot, ekki ráðist á fólk, ekki skotið menn nje
framið önnur refsiverð afbrot.
Hvers vegna fremja kínverskir æskumenn ekki afbrot,
þrátt fyrir það, að ungum glæpamönnum fjölgar í Am-
eríku?