Valsblaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 18
j Motor
sigur á Stjörnunni. Undanúrslitaleikur-
inn var gegn HK og reyndist hann mjög
spennandi, HK stóð þó uppi sem sigur-
vegari og vann einnig úrslitaleikinn gegn
Akureyri. Valsmenn unnu síðan FH í leik
um 3. sætið. Þjálfari flokksins var Heim-
ir Ríkarðsson og honum til aðstoðar var
Kristinn Guðmundsson.
Besti leikmaður: Orri Freyr Gíslason
Efnilegasti leikmaður: Ingvar Guð-
mundsson
3. flokkur karla
Flestir leikmanna flokksins voru á yngra
ári (fæddir 1991) en þar eru margir efni-
legir strákar sem vonandi eiga eftir að
vinna sig upp í meistaraflokk félags-
ins. Flokkurinn lék í 2. deild og unnu sig
upp í úrslitakeppnina þar sem þeir töp-
uðu fyrir Þór í leik á Akureyri. Kristinn
Guðmundsson þjálfaði flokkinn í tvö góð
ár og eru honum þökkuð mjög vel unnin
störf með þessa stráka. Þeir æfðu með 2.
flokki og framfarir voru góðar. Nokkrir
af leikmönnum flokksins fengu síðan að
æfa með meistaraflokki sumarið 2008 og
nýttu það tækifæri vel.
Besti leikmaður: Atli Már Báruson
Mestar framfarir: Ólafur Einar Ómars-
son ’91
Besta mœting: Brynjólfur Stefánsson
4. flokkur karla
Það var sama sagan með 4. flokk og 3.
flokk, flokkurinn samanstóð af leikmönn-
um á yngra ári (fæddir 1993) það
var líka raunin í 5. flokki og nokkuð
áhyggjuefni hjá okkur Valsmönnum að
það vanti alltaf inn í nokkra árganga hjá
okkur. í flokknum eru efnilegir keppn-
ismenn sem eiga eftir að ná langt með
réttri þjálfun. Flokkurinn lék í 2. deild
og stóð sig ágætlega, æfðu vel og fram-
farir þó nokkrar. Sveinn Aron Sveinsson
var haustið 2008 valinn í 1992 landslið
íslands.
Þjálfari flokksins Ólafur Snorri Rafns-
son þjálfar nú hjá Aftureldingu og þökk-
um við honum vel unnin störf.
Besti leikmaður: Bjartur Guðmundsson
Mestar framfarir: Baldvin Fróði Hauks-
son
Besta mœting: Egill Gunnarsson
Maggabikarinn: (besti félaginn í flokkn-
um valið af strákunum sjálfum og bikar-
inn gefin í minningu Magnúsar Blöndal)
Valdimar Grímur Magnússon
5. flokkur karla
Um 16 strákar æfðu í 5. flokki og hélt sá
flokkur úti tveimur liðum sem tók þátt í
fimm Islandsmótum. Tveir af leikmönn-
um þessa flokks hafa í ár fengið að fara
á landsliðsæfingar, þeir Alexander Júlí-
usson (sonur Júlíusar Jónassonar) með
1994 landsliðinu og Gunnar Þórsson
einnig með 1994 landsliðinu en hann er
fæddur 1995 og enn í 5. flokki. Flokk-
urinn stóð sig heilt yfir ágætlega undir
stjórn Arnórs Gunnarssonar. Honum til
aðstoðar var Arnar Hrafn Ámason sem
nú stundar nám í Danmörku. Þeim eru
þökkuð vel unnin störf fyrir félagið.
Besti leikmaður: Alexander Júlíusson
Mestar framfarir: Fjölnir Daði Georgs-
son
Áhugi og ástundun: Haukur Ásberg
Hilmarsson
6. flokkur karla
Um 18 strákar æfðu undir stjórn Krist-
ins Guðmundssonar en aðstoðarþjálfari
flokksins var Atli Már Báruson. Strákarn-
ir tóku miklum framförum og í þessum
flokki eru margir stórefnilegir drengir.
Mikill missir er í Kristni sem nú þjálfar
hjá HK, náði hann vel til strákanna. Þeir
tóku þátt í fimm mótum og var það síð-
asta á Akureyri þar sem drengirnir stóðu
sig vel og enduðu veturinn á skemmti-
legan hátt.
Besti leikmaður: Sturla Magnússon
Mestar framfarir: Kolbeinn Ari Arnórs-
son
Áhugi og ástundun: Daníel Andri Val-
týsson
7. flokkur karla
Fjölmennasti flokkur yngri flokka Vals
undir stjórn Dórótheu Guðjónsdóttur og
Ármanns Sigurðssonar. Flokkurinn æfði
tvisvar í viku og tók þátt í þremur mót-
um og stóð sig vel. Mesta fjölgunin var
í þessum flokki og héldu þjálfararnir vel
utan um flokkinn.
Allir drengirnir fengu verðlaun á
uppskeruhátið flokksins.
IVIOIUI
18
Valsblaðið 2008